Árið 1615

t.d.

2 vísur frá árinu 1615
  1. 1615Lag: Dvel ég í draumalandi

    Hróður Íslands lægst þá laut

    lægra Hrunsins ránum
    þegar blessað barnið skaut
    Baskana á hnjánum.
    Annan höfðu syðra sið
    segir þulur fróði
    skipbrotsmanna lúið lið
    lögðu í sæng hjá fljóði.

    Ari Magnússon (1571-1652) sm. í Ögri fær Magnúsi, f. 1599, syni sínum byssu og lætur hann skjóta vopnlausa skipbrotsmenn frá Baskalandi. Samtals 31 drepinn með framhlaðningi. Unglingar alltaf fljótari að tileinka sér…

    Hlusta
    Ari Magnússon, Kristín Guðbrandsdóttir
  2. 1615Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Íslendingur upp í sig

    allra fyrstur tekur
    niður vör og nef í svig
    nikótínið lekur

    Lýður Björnsson, Frá samfélögum, 208: ,,Jón Ólafsson Indíafari sá tóbak fyrst notað á ensku skipi 1615 og lærði þá notkun þess". Jón gekk í danska sjóherinn, var fallbyssuskytta þar og komst með Dönum bæði til Indlands…

    Hlusta
    Enskt herskip