Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

17. öld · 169 vísur, í tímaröð
  1. 1601

    ,,Formyrkvan sólar á Magnúsarmessu /

    mestallan daginn stóð"
    svo óáran verður nú upp frá þessu
    iðrist ei gjörvöll þjóð.

    Fitjaannáll II, 91: ,,Skeði hræðileg formyrkvan á sólunni á Magnúsarmessu fyrir jól (13. desember), stóð yfir lengi dags eður mestallan daginn, svo sólin varð öll svört, sem boðaði eptirkomandi óáran (einokunarverslun /…

  2. 1601Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Þótti verst við Blefkens bók

    að blóð- ei sýndi þorsta
    samt öllum framar Ormur tók
    um ofbeldi og rosta.
    Er Krákur mátti um krákustíg
    komast leiðar sinnar
    Ormur hótar: ,,á þig míg,
    slæ augu út á kinnar”.

    Ýmsir græddu á að rita ferðabækur um Ísland þótt aldrei hefðu þangað komið. Þar voru Íslendingar sagðir ,,deilugjarnir, illviljaðir, hefnigjarnir, fláráðir, þrællyndir, óhófsamir, lostafullir, saurlífir, svikulir og…

    Hlusta
    Simeone og CR7 leika eftir séra OrmiSkansinn nýi á Heimaey+3
  3. 1602Lag: Dvel ég í draumahöll

    Kristjáni hinum fjórða falt

    flest er orðið núna
    kóngur lítur á Ísland allt
    sem aðalmjólkurkúna
    er nú boðin upp og seld
    útpæld kaupslagsmöndlun
    betur þoldum ís og eld
    en einokunarhöndlun.
    1 erindi til viðbótar

    Missa nú ríkir spón úr aski sínum - sjá 1604, Líftaug landsins bls. 214. Skotinn Adam Smith (1723-1790) ritaði ,,Auðlegð þjóðanna", útg. 1776 og boðaði frjálsa verslun. Áratug síðar var verslun Íslands gefin frjáls…

    Hlusta
    Kristján IV.Hamborg 1811Kort: Kaupmannahöfn á 17. öld+1Myndband
  4. 1602Lag: Augun mín og augun þín

    Snauðir máttu snúa frá

    er snapa vildu í kviðinn
    því boginn hrundi af Brúará:
    Er brytinn þar við riðinn?

    Úr Biskupasögum Jóns prófasts Halldórssonar (1665–1736) í Hítardal: ,,...1602, var af fátæku umferðar og uppflosnuðu fólki úr öllum áttum mikil aðsókn að Skálholtsstað. En bryti staðarins meinti henni mundi réna, ef sú…

    Hlusta
    Brúarfoss
  5. 1602Lag: Veröld fláa

    Höggva þennan Barna-Björn

    böðull illa í standi:
    fjórar konur, fjögur börn
    fjarri hjónabandi.
    1 erindi til viðbótar

    E.t.v. fyrst höggvinn karl skv. Stóradómi: SkarðsárannálI l, 187: ,,Tekinn af á alþingi Björn Þorleifsson fyrir kvennamál og annað svall, fékk góða iðran. Biskupinn, herra Oddur, áminnti hann sjálfur. Hann kvaddi menn…

    Hlusta
    Mastro Titta,  böðull Vaticansins frá 1796 í 68 ár
  6. 1603Lag: Það liggur svo makalaust ljómandi á mér - Stúd. 43

    ,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést

    en langt er nú síðan að það hafði gerst
    sem Magnúsi þótti á þeim tíma verst
    og þess vegna vestur á firðina sest.
    Hæ, dúllía, dúllía .......
    1 erindi til viðbótar

    1603 deyr sm. Vigfús Þorsteinsson, Skútustöðum og Ási í Kelduhverfi, sonur Þorsteins í Reykjahlíð, Finnbogasonar Maríulausa Jónssonar Maríuskálds Pálssonar, d.~1470. Seinni kona Jóns Maríusskálds Pálssonar og langamma…

    Hlusta
    Námaskarð+3
  7. 1603Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Fátæklingur margur mát

    þá mændi út á fjörð
    því enginn fékk að eiga bát
    ef ekki fylgdi jörð.

    Þess skammt að bíða, sjá 1604, að lm. Þórður kvarti við kóng undan einokunarversluninni, en hefur ekki áhyggjur (sbr. vísuna) af eftirfarandi: Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 19: ,,Það sjónarmið, að…

    Hlusta
    Bátur í Skáleyjum
  8. 1604Lag: Hani, krummi / Austankaldinn

    Á Eyrum berja bændur á

    búðarlokuþjóni
    að svoddan Þórður sveigir skrá
    Svalbarðs- meður Jóni. .
    1 erindi til viðbótar

    Þórður lm. SA Guðmundsson (~1524-1608) 80 ára, mótmælir skriflega nýjum verslunarháttum Kristjáns IV., þ.e., einokunarversluninni frá 1602, og hefur sem oftar samráð við lm. NV, Jón Svalberðing Jónsson, sbr. 1606 og…

    Hlusta
    Kristján IV.Friðrik II.+1
  9. 1604Lag: Hani, krummi / Austankaldinn

    Mættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,

    jeg trúi ensku tali
    fái hann komið á fálka sjón
    fær honum breytt í dali.
    1 erindi til viðbótar

    Ísl. æviskrár: ,,Jón Pétursson (~1584-1667 eða 1672) fór til Englands 1591 með enskum skipherra, vini föður síns, Péturs Péturssonar í Arnarfirði, og vandist sjóferðum og kaupskap. Kom aftur til landsins í…

    Hlusta
    RíkisdalirFálkiBrokey+1
  10. 1605Lag: Sá frjáls við lögmál

    Ofan á hönd Jóns hellan féll

    og hún varð ekki fögur
    en þrátt vér megum þessum skell
    þakka Biskupasögur.

    Séra Jón Egilsson (1548 - ~1636), Hrepphólum, hættir prestskap eftir þetta vegna slyss, er steinn sem hann ætlaði til bæjarhellu féll í far sitt aftur og urðu fingur vinstri handar prests á milli og liðu tvö dægur áður…

    Hlusta
    SkrifariJárnkallHrepphólakirkja
  11. 1606Lag: Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard

    Núna getur Gutti rótt

    Guðs sig falið valdi
    því lögmanns Jóns var sálin sótt
    sofnaði burt í tjaldi.
    1 erindi til viðbótar

    Jón lm. NV Jónsson, f. 1536, vaknaði ekki aftur í tjaldi sínu á Bessastöðum morguninn eftir veislu hjá nýjum hm., Herluf Daa. Vel átti að hafa farið á með þeim og taldi Jón sig hafa í H. Daa fengið góðan liðsmann gegn…

    Hlusta
    Bessastaðir 1834Guðbrandur Þorláksson HólabiskupBiskup og riddari takast á
  12. 1607Lag: Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard

    Að Orminum skyldi enginn dást

    - ógurlegri en hugðum -
    um Löginn svamla lengi sást
    liðast með þremur bugðum.

    Fitjaannáll II, 94: ,,Sást ormurinn í Lagarfljóti austur með þremur bugtum. Sagt er að þar séu einninn tvær aðrar ókindur, selur og skata". J. Espólín: ,,...orminn sáu svo gjörla í þrem bugtum að maður hefði mátt ganga…

    Hlusta
    Veggskreyting utan við FSU, SelfossiLögurinn
  13. 1607Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Endilangur laminn féll

    landsins stærsti skógur
    olli þessu' á svipstund svell
    og svæsinn bylur nógur
    ekki skorti eldivið
    - upp gekk rúm í hjöllum -
    brandar gætu bæst í lið
    báls á Möðruvöllum.

    Alþm. Einar Arnórsson birti eftirfarandi í blaðinu Suðurland 4. apríl 1914 og heimild hans eru jarðabókarhöfundarnir, Árni og Páll: ,,Veturinn 1607 féll stærsti skógur Íslands, Möðruvallaskógur, á einum degi. Bolirnir…

    Hlusta
    Nonnalundur á  Möðruvöllum +3
  14. 1608

    Á tvöföldu gengi talsvert græddist

    tekjur drýgðust ,,sýsla”
    Hákon dó en Fúsi fæddist
    föður sínum Gísla.

    Lögrétta ákveður e-k tvöfalda gengisskráningu landaura. Þ.e., gjöld til konungs, sem sýslumenn tóku við í ríkisdölum voru á fjórðungs hærra gengi en ef greitt var í fríðu og liðu sýslumenn því launverslun við erlendar…

    Hlusta
    Gísli Hákonarson, lm. BræðratunguBræðratunga
  15. 1608Lag: Sá frjáls við lögmál

    Eingetinn sonur í Sæmundarhlíð

    seint gekk við Þórdísi' að spjalla
    lítið samvinnu- þótti þýð
    þekkt hefði enga kalla.

    Þórdís Halldórsdóttir, til heimilis á Sólheimum í Sæmundarhlíð hjá systur sinni og mági, Tómasi Böðvarssyni, bændum þar, vissi engan föður að barni sínu, sem fæddist 1608. Sjá nánar 1612 og 1618. Tilvísanir og…

    Hlusta
    Sólheimar í Sæmundarhlíð, Skagafirði
  16. 1609Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Kóngur bannar að krenkja lík

    kveikja í þeim og brenna
    en drauga ásókn engu glík
    ergir leita kvenna.

    Kristján IV. sendir tilskipun sem bannar Íslendingum að grafa upp lík og brenna, ganga milli bols og höfuðs og færa til þjós, sem tíðkað var þegar sá látni hafði haft í heitingum að ganga aftur. Dæmi þess er fjallað um…

    Hlusta
    Úr Inferno, Divina Comedia eftir DanteKristján IV.+3
  17. 1610Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Austfirðingar ýmist geldir

    eða skortir kikkið
    þeim eru strákar að sunnan seldir
    á 60 álnir stykkið.

    Fitjaannáll II, 96: ,,Var margur drengur og stelpa á þessu ári, og nokkur fyrirfarandi sumur, flutt sunnan að og í Austfirði, af sýslumanni þar, vegna manndauða og fólksfækkunar. Drengirnir voru seldir fyrir 60 eður 80…

    Hlusta
    Austfirðir
  18. 1610Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Hægri skyldi af höndin fim

    með hinni Oddur snæði
    halda mætti leyndarlim
    ef léti eyru bæði.

    Eftir að Fitjaannáll II greinir á bls. 96 frá barnasölunni til Austfjarða 1610 kemur í beinu framhaldi eftirfarandi saga af séra Oddi Þorsteinssyni sem gerist um 1554, en dóminn kvað upp lm. Oddur Gottskálksson. Þar…

    Hlusta
    Óspakseyri 1987
  19. 1611Lag: Við stallinn Kristí

    Þess nú gerist brautin bein

    biskups- er telst af ættar grein
    en það er nú hinna þrautarmein
    að þekkja hann ei sem bæri
    ;.; ei ókeypis neinn Oddur tók í læri ;.;

    Einar Laxness, Íslands saga II, 124: ,,Á biskupsárum Odds Einarssonar í Skálholti, 1589-1630, skipaði hann helst í embætti menn sér náskylda eða tengda, án mikils lærdóms; nutu þá ýmsir ættingjar hans forgangs til náms…

    Hlusta
    Búnaðarbankinn
  20. 1611Lag: Augun mín og augun þín

    Vestan úr Gandvík verður sagt

    á vofum glöggt menn þreifi
    með höldum þar í hæstri akt
    haldinn Galdra-Leifi.

    Skarðsárannáll I, 199: ,,Apturganga þreifanleg á Vestfjörðum." Neðanmáls þar: ,,Það hefur verið hinn nafnkunni Snæfjalladraugur er Jón lærði og Galdra-Leifi fengust við". Sjá 1612. Ballarárannáll III, 191: ,,Gekk…

    Hlusta
    GaldrakarlDrangajökull+3