Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1602
1602
1602

Höggva þennan Barna-Björn

Hljóðbrot0:00

Lag Veröld fláa

HHöggva þennan Barna-Björnböðull illa í standi:fjórar konur, fjögur börnfjarri hjónabandi.

Dauðinn Gumma hjó á hnúthætti konur eltapunga má samt ekkjan útþví ei má kóngur svelta.

Glúmur Gylfason · 1602

Heimildir og samhengi

E.t.v. fyrst höggvinn karl skv. Stóradómi:
SkarðsárannálI l, 187: ,,Tekinn af á alþingi Björn Þorleifsson fyrir kvennamál og annað svall, fékk góða iðran.
Biskupinn, herra Oddur, áminnti hann sjálfur. Hann kvaddi menn með handabandi áður sig niður lagði á höggstokkinn og bauð svo öllum góða nótt. Var hann með öllu óbundinn.
Jón böðull var gamall og krassaði í höggunum, en Björn lá kyrr á grúfu og þá sex höggin voru komin leit Björn við og mælti: ,,Höggðu betur, maður”. Lá hann svo grafkyrr, en sá slæmi skálkur krassaði ein 30 högg áður af fór höfuðið og var það hryggilegt að sjá”.

Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjónasængur, 127:
,,Höggva skyldi Guðmund Helgason fyrir fjórðu barneign utan hjónabands. Eiginkonan, Arndís Sigfúsdóttir Brunnmannssonar keypti höfuð hans fyrir 350 rd. þ.e., eigur sínar og arf dætranna". GH lést áður en greitt væri en ,,þó hlaut gjaldið að greiðast” segir annállinn. Þ.e., Hirðstjóraannáll II, 724.
Gjöldin skiptust jafnt milli kóngs og sýslumanna.

HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)

Um myndina í miðið:
Vefurroma.andreapollett.com (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1602

  • Kristjáni hinum fjórða falt
  • Snauðir máttu snúa frá
← 1602Snauðir máttu snúa frá1603 →,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést