Kristjáni hinum fjórða falt
Lag Dvel ég í draumahöll
Kristjáni hinum fjórða faltflest er orðið núnakóngur lítur á Ísland alltsem aðalmjólkurkúnaer nú boðin upp og seldútpæld kaupslagsmöndlunbetur þoldum ís og elden einokunarhöndlun.
Í 17. aldar ökonomíallt var heima besten Kristján og hans kompanífór konkúrs fyrir rest.
Heimildir og samhengi
Missa nú ríkir spón úr aski sínum - sjá 1604, Líftaug landsins bls. 214.
Skotinn Adam Smith (1723-1790) ritaði ,,Auðlegð þjóðanna", útg. 1776 og boðaði frjálsa verslun. Áratug síðar var verslun Íslands gefin frjáls öllum þegnum Danakonungs og 1855 var hún öllum frjáls. Sjá hér við 1787 og 1855.
Áður töldu hagfræðingar að hver skyldi búa að sínu.
Tvívegis, 1759 og 1774 fékkst enginn kaupmaður til Íslandsverslunar eða þeir voru gjaldþrota, sem og gerðist 1660 og eftir fólksfækkun í stórubólu 1707, heimild á bls. 62 tilgreind í næstu línu.
Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 61 segja niðurstöðuna þá, að sé einokunarverslunin skoðuð af hlutlægni hafi hún ekki verið örlagavaldur í lífi þjóðarinnar. Íslendingar bjuggu eins og flestir aðrir Evrópubúar að mestu við sjálfsþurftarbúskap í sveitum.
,,Lífseigasta sögusögn sjálfstæðisbaráttunnar er sagan um kúgun Dana á Íslendingum. Sérstaklega var einokunarverslunin talin vera aðalorsökin fyrir því hversu Íslendingum hnignaði á þessum tíma. ... Um miðja 16. öld lækkaði fiskverð ... við siðaskiptin höfðu N-Evrópubúar hætt að borða eingöngu fisk á föstunni og auðug fiskimið fundust við Nýfundnaland og sóttu Englendingar mikið á þau mið". (Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 56 og 58).
Einokunarverslun frá 1602 til 1788, þá fríhöndlun til 1855, eftir það kallað verslunarfrelsi, sem þó var takmarkað á styrjaldarárunum fyrri og síðari og í heimskreppunni á millistríðsárunum og allt til 1960.
Tilvísun: Jakob F. Ásgeirsson, ,,Þjóð í hafti".
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Jón Aðils segir í sögu sinni af einokunarversluninni, að henni hafi ekki verið komið á af mannvonsku Kristjáns IV. en hafi talið sig gera það sem Íslendingum væri fyrir bestu enda í fullu samræmi við ríkjandi samtímahugmynd, merkantílismannn, þ.e. kaupauðgisstefnuna.
Tilvísun: Jón Þ. Þór, Höndlað við Pollinn, bls. 21.
Verslun var ekki frjáls í Evrópu fyrr en í lok 19. aldar, (sjá 1855, tilvitnun í Der Spiegel) og hafði síður en svo verið frjáls fram að þessu á Íslandi.
Verslun Íslendinga var aðeins alfrjáls í 60 ár, frá 1855 til ársins 1914, þegar Englendingurinn Cabel tók að stjórna henni og allt til stríðsloka 1918. Eftir það heimskreppan með gjaldeyrisskorti og innflutningshöftum sem komið var á í áföngum 1933 til 1935 og giltu fram yfir 1960. Þá lokuðu evrópuþjóðir fyrir innflutning en bjuggu að sínu nema þau sem leyfðu takmarkaða vöruskiptaverslun og þurfti þá mútur til, - t.d. Spánn (sjá mynd) og Ítalía og vissu sumir Íslendingar allt um það. Þá kom síðara stríðið með eftirfarandi skömmtun í vöru- og gjaldeyrisskorti svo langt sem tímabil þessarar vefsíðu nær og lengur.
Jón Krabbe: Frá heimastjórn til lýðveldis: ,,Það var trú manna á þessum tíma að hver ætti að búa að sínu".
Fyrir 1602 reyndu kóngar að hindra veiðar og verslun annarra þjóða við Ísland eftir að sigling jókst með tvímöstruðum skipum á 15. öld. Til er svarbréf Íslendinga frá 1419 við bréfi kóngs, Eiríks af Pommern, sem bannaði verslun við utanríkismenn.
Ísl. fornbréfasafn, IV, 380 geymir bréf Eiríks konungs frá 7. maí 1425, sem bannar útlenskum mönnum að sigla til skattlanda hans og býður lögmönnum að segja lög og rétt yfir þeim sem það gera án bréfa frá konunginum.
1348 gaf Noregskonungur, Magnús smek Eiríksson, út tilskipun sem bannaði erlendum kaupmönnum verslun í skattlöndunum. (Öldin fjórtánda, bls., 106).
Verslunarfrelsi komst á í Prússlandi 1810, en verslunarfrelsi orðið ráðandi í evrópu um 1890.
Verslunarfrelsi tók gildi í Leipzig 1862 og 1869 í Norður-Þýskalandi (Norddeutschen Bund), skv. Der Spiegel, Geschichte, 4/2018, bls. 89.
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, 97: ,,Það var meining Danakonungs árið 1602, að kaupmönnum Hamborgar yrði meinuð öll þátttaka í Íslandsversluninni. En það var hægara sagt en gert enda voru Hamborgarar skipulagðir í sérstökum félagsskap, Íslandsgildinu, og þeir höfðu góða reynslu af þessari verslun, þeir réðu yfir nauðsynlegum skipum til Íslandssiglinga og þeir höfðu komið sér upp öflugu dreifingarkerfi á íslenskum útflutningsafurðum. Nýju dönsku kaupmennirnir höfðu hvorki reynslu, skip eða sambönd og því var það Hamborgarkaupmönnum stundum auðveldur leikur að hafa áfram ákveðin tök á Íslandsversluninni þrátt fyrir að þeim væri meinað að sigla til landsins". Sjá 1581, 1604 og Sögu LIX-1, 2021, bls. 51. Þar er vitnisburður þýskra skipverja í yfirheyrslu í Hamborg vegna kæru frá Danakonungi um brot á nýju verslunarlögunum.
Axel Kristinsson: Hnignun, bls. 153, sem án þess þó að nefna Tyrkjaógnina, sem stóð allt til 1683, segir að á þessum stríðstímum hafi Danakóngur – eins og aðrir í evrópu – orðið að efla ríkisvaldið og herinn og tekur hvarf Póllands sem dæmi um hvernig farið gat og að Danmörk var næstum farin sömu leið 1658/1660 og þess vegna komið á einveldi (sem beint var gegn aðlinum). Sjá 1658hér.
Leið ríkisins að fjármagni var tollar og leyfisgjöld á einkaleyfisverslunina. Það bitnaði á þeim sem mest versluðu, sem voru bestu bændur og yfirstéttarfólk. Skattahækkun hefði lítið snert þessar stéttir (þegar gjaldið var hið sama, 20 álnir, á alla sem náðu því að eiga 3 kúgildi og æðstu menn alveg skattfrjálsir, e.t.v. skv. Mt. 17, 26).
,,Og þar sem yfirleitt heyrist meira í yfirstéttarfólki en öðrum er hér kannski komin skýring á hve óskaplega óvinsæl einokunin virðist hafa verið”. Segir Axel.
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 406: ,,Það má og hafa vakað fyrir konungi og ráðunautum hans, að danskir kaupmenn myndu fara friðsamlega með ráði sínu á Íslandi, en því verður eigi neitað, að Íslendingar höfðu oft orðið að sæta ofbeldi og jafnvel ránum af hálfu útlendra kaupmanna, stundum jafnvel hinna þýsku ...og stjórninni auðveldara að hafa hemil á dönsku kaupmönnunum ef eitthvað bar á milli". Sbr. 1604 hér.
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Önnur heimild: Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, bls. 198-202.
Gunnar Gunnarsson lætur Bjarna vinnumann koma með annað sjónarhorn er hann bendir Ugga Greipssyni á, að hefði hann ekki orðið að láta skrifa tóbak og brennivín í reikning í liðuga hálfa öld, gæti vel verið að hann sæti í dag í sjálfseign, þéttefnaður bóndi og búhöldur, og ,,...Hefði þó ekki væri nema annar hver eyjaskeggja haft rænu á að skammta sjálfum sér úr hnefa síðustu fimm áratugina, myndum við í dag vera stöndug þjóð og gætum leyft okkur að hrækja á gólfið innan við búðarborðið í hvaða krambúð sem vera skyldi". (Fjallkirkjan I, 129).
Í fyrirlestri á Hugvísindaþingi 2020 sagði prófessor Guðmundur Jónsson: ,,...einokunarverslunin tryggði bændum ákveðið skjól fyrir markaðssveiflum af því að það var fastur verslunartaxti sem allir þurftu að fara eftir og breyttist ekkert áratugum saman".
Hér er slóð á þingið. Ofangreind orð Guðmundar falla á 14. mínútu, 25 sek.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sjá enn fremur:
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Gísli Gunnarsson, Líftaug landsins, bls. 283; ,,Allt bendir til að fyrir daga einokunarverslunar hafi flestir almúgamenn ekki haft rétt til að versla beint við kaupmenn heldur hafi höfðingjar/landeigendur oft eða oftast haft einir þennan rétt og selt síðan landsetum sínum erlendar vörur á uppsprengdu verði".
Í Sögu LIX-1, 2021, bls.228-230 andmælir Helgi Þorláksson sagnfræðingunum M. Bregnsbo (f. 1962), og Uffe Östergaard (f.1945) sem í bindinu Danmark, en kolonimagt frá 2017 taka undir rök danskra kaupmanna á seinni hluta 18. aldar (gegn frjálsri verslun?) ,,að aðflutningar væru brýnir Íslendingum enda væri þeim flutt járn, veiðarfæri, timbur og matvæli svo sem mjöl".
Helgi segir á bls. 230 að ,,Íslendingar hafi verið vandir á aðflutninga". Hafi áður nýtt mýrarrauða í járn, brennt þang í salt, ,,komust af þótt íslenskt korn væri takmarkað" og nýtt rekavið til smíða og nefnir í því sambandi haffær skip.
,,Östergaard segir að Íslendingum hafi verið eins gott að Danir sinntu þeim, annars hefðu kannski baskneskir eða hollenskir hvalveiðimenn eða norður-afrískir sjóræningjar tekið Ísland. ... Er reyndar undarlegt að þeir skuli ekki nefna Englendinga í þessu sambandi".
Spyrja má: Vandi einokunarverslunin Íslendinga af því að vinna járn úr mýrarrauða, sjóða salt, smíða skip, mala korn, og brugga?
Kom hún í veg fyrir að nefnd nýlenduveldi legðu undir sig Ísland með sama hætti og þau gerðu í hinum heimsálfunum?
Hrefna Róbertsdóttir, 2. íslenska söguþingið, bls. 255: ,,Íslensk yfirstétt hafði löngum áhyggjur af veru danskra kaupmanna í landinu og barðist gegn vetursetu þeirra og áhrifum í atvinnulífinu ... jafnframt því sem þeim var legið á hálsi fyrir að verða ekki að gagni við uppbyggingu landshaga".
,, ...krúnan fékk einu teljandi tekjur sínar af Íslandi í formi verslunarleigu kaupmanna"
segir Harald Gustafsson á bls. 113 í Ísl. söguþingið, Ráðstefnurit II.
H.G. segir einnig í sama riti, bls. 109 að það litla sem skrifað hafi verið um aldirnar 1500 til 1800, þ.e., áður en þjóðernisrómantíkin varð allsráðandi ,,hafi verið mótað af þeirri tímaskekkju að skoða samskipti Íslendinga og Dana úr sjónarhorni nútíma þjóðernisvitundar og túlka söguna sem baráttu milli þessara þjóða".