Þótti verst við Blefkens bók
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Þótti verst við Blefkens bókað blóð- ei sýndi þorstasamt öllum framar Ormur tókum ofbeldi og rosta.Er Krákur mátti um krákustígkomast leiðar sinnarOrmur hótar: ,,á þig míg,slæ augu út á kinnar”.
Heimildir og samhengi
Ýmsir græddu á að rita ferðabækur um Ísland þótt aldrei hefðu þangað komið.
Þar voru Íslendingar sagðir ,,deilugjarnir, illviljaðir, hefnigjarnir, fláráðir, þrællyndir, óhófsamir, lostafullir, saurlífir, svikulir og þjófóttir” - tekið af kápu Frásagna af Íslandi, útg. 2013 af Sögufélaginu í umsjá Más Jónssonar og Gunnars Þórs Bjarnasonar.
Þar segir einnig að verra en þetta þótti hér, að landanum var brugðið um hugleysi og sagður óhæfur til hermennsku.
Því var mótmælt: ,,víst hefðum við drepið Spánverja”.
Þekktastur höfunda var Dithmar Blefken. Kom bók hans út 1607 og segir Óttar Guðmundsson í Tíminn og tárið, bls. 75, að hún hafi komið út á mörgum tungumálum í 150 ár. Einnig, að margt í henni geti verið sannleikanum samkvæmt.
Reyndar hallast varla á, því að íslenskir annálar geyma fjölda fjarstæðukenndra furðusagna af meginlandinu.
Kirkjubæjarprestur í Vestmannaeyjum, séra Ormur Ófeigsson, sýndi oft af sér ofbeldisfulla framkomu sem vitnað hefði um hughreysti Íslendinga ef getið hefði verið í bók Blefkens. T.d. sló í bardaga milli hans og Jóns kráks Vigfússonar við Holtsós undir Eyjafjöllum 1601 þegar Ormur synjaði Kráki flutnings. Jón krákur bjó í Skáney, Borgarfirði, ,,máldjarfur, lagamaður, snarharður" segja Sýslumannaævir Boga Benediktssonar.
Vegna farbanns hm. Bockholts, sem ekki hafði frést til Vestmannaeyja, vildi Krákur leita sér fars þaðan er hann flutti erindi móðurafa síns, lm. Þórðar Guðmundssonar til kóngs: kæru á hm. Bockholt, en þá greindi á um hversu dæma skyldi í aðtektarmáli nokkru, en höfðu áður verið vinir góðir, skv. Sögu Íslendinga IV, 238. (1604).
Í annan tíma, 1607, kærðu Danir í Eyjum séra Orm enda hafði hann ,,dirfst að ganga í múrstofu kónglegrar hátignar, taka út leyndarlim sinn og kasta af sér vatni yfir kokkinn”, þar sem hann stóð að matargerð við eldinn. Hrökklaðist svo frá Eyjum 1608, en hafði áður flæmst frá Landþingum 1591 eftir skamma dvöl, - sbr. Ísl. æviskrár.
(Öldin sautjánda, bls. 10 og 24).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)