,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést
Lag Það liggur svo makalaust ljómandi á mér - Stúd. 43
H,,ann Fúsi sem kallar sig lögmann” lésten langt er nú síðan að það hafði gerstsem Magnúsi þótti á þeim tíma verstog þess vegna vestur á firðina sest.Hæ, dúllía, dúllía .......
Og víst hafði þá upp á vinskapinn slestog viðskiptum ættanna slegið á fresten gleymt er nú allt það og grafið sem bestmeð giftingum innsiglað, þinglýst og fest.Hæ, dúllía, dúllía .......
Heimildir og samhengi
1603 deyr sm. Vigfús Þorsteinsson, Skútustöðum og Ási í Kelduhverfi, sonur Þorsteins í Reykjahlíð, Finnbogasonar Maríulausa Jónssonar Maríuskálds Pálssonar, d.~1470.
Seinni kona Jóns Maríusskálds Pálssonar og langamma Vigfúsar, var Þórunn Finnbogadóttir gamla í Ási, Jónssonar, d. ~1442, sem Ásverjar eru taldir frá - líka nefnd Langsætt.
Fyrsta vísuorð er haft eftir Magnúsi prúða Jónssyni (~1521-1591) þegar frétti á skotspónum 1563 að Vigfús Þorsteinsson væri í sinn stað orðinn sýslumaður Norðursýslu í skiptum fyrir brennisteinsrétt Reykjahlíðar. Fluttist Magnús þá vestur í Ísafjarðardjúp.
Foreldrar ákváðu hjónabönd barna sinna. Jafnræði vó þá þyngra en fyrri fjandskapur, sbr. eftirfarandi, sem vísar til 1563.
Þegar Sigurður yngir Oddsson, biskups, drukknaði 1617varð ekkja Þórunn ríka f. 1594, Jónsdóttir sm. Galtalæk, Vigfússonar sm. Ási, þ.e., fyrrnefnds Fúsa, og 1620 giftist hún Magnúsi Baskaskyttu (1599-1635) Arasyni í Ögri Magnússonar prúða (1615).
Dóttir Þórunnar og hennar fyrri manns, Hólmfríður, sem fæddist 1617, giftist 1636 Jóni skáldpresti í Vatnsfirði Arasonar í Ögri, og af þeim mikill ættbogi. Báðir afar barna þeirra Vatnsfjarðarhjóna, sm. Ari í Ögri og Oddur biskup, sáust alls staðar upp úr mannfjöldanum á Þingvöllum, og erfðu Vatnsfjarðar- og önnur börn bæði hæð þeirra og þyngd svo að við nöfn þeirra var einatt bætt ,,digri/digra". Dæmi sést á 5000 kr. seðlinum. Magnús (1637-1702) digri í Vigur fann ráð þegar fætur og hestar vildu ekki bera hann til kirkju í Ögri og flutti til landsins hjólakerru. Það kann að vera fyrsta farartæki á hjólum hér á landi. (Sjá 1689, 1715).
Þessara líkamsburða gætti og lengi meðal annarra afkomenda Ara og Odds og allt til 21. aldar.
Dæmi þess: Dóttursonur Odds, sr. Jósef Loftsson, Ólafsvöllum, ,,orðlagður kraftamaður" (Ísl. æviskrár), sjá 1661, sonarsonur hans, offiscialis Þorleifur Skaftason í Múla (1733) var ,,afarmenni að burðum" (Ísl. æviskrár) og Kolbeinn Þorleifsson auðgi á Háeyri, Eyrarbakka 3. frá sr. Þorleifi (1852) og kraftalegur á mynd. Hann var langafi séra Kolbeins Þorleifssonar (1936-2007), sem vel var að manni.
Fram á vélaöld voru kraftar og stærð metin næstum á við auð og völd og fóru líka vel saman.
Gísli (1593 – 1638) sonur Odds biskups ,,kraftamaður hinn mesti", (Mbl. 2/7 2018), bar hellu umhverfis Skálholtskirkju sem sterkir menn rétt náðu að færa á kné sér. Hann var (þess vegna?) tekinn til biskups fram yfir Brynjólf Sveinsson1632.
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
Á ,,Krossgötum" í Neskirkju 20/9 2022 minnti dr. Skúli Ólafsson á að áður en yfirvöld gátu beitt valdi til að framfylgja dómum þá urðu menn með eigin kröftum að verja og sækja rétt sinn sjálfir. Óhjákvæmileg skylda karlmanns var að standa vörð um sinn hlut og ættarinnar enda sjaldan skortur á ofbeldismönnum.
Þarna liggja rætur feðraveldisins sem viðheldur stéttaskiptingu og notar dætur sem skiptimynt í valdabaráttu.
Á þessum vef er sm. Árni Gíslason (~1520-1587) tekinn sem dæmi um þetta árin 1563, 1569 og 1587.
Með Járnsíðu, 1271, var blóðhefnd ólögleg. Varð þá sjálfhætt að rita Íslendingasögur.
(1562, 1568, 1570, 1572, 1617, 1861).