Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1603
1603
1603

Fátæklingur margur mát

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

FFátæklingur margur mátþá mændi út á fjörðþví enginn fékk að eiga bátef ekki fylgdi jörð.

Glúmur Gylfason · 1603

Heimildir og samhengi

Þess skammt að bíða, sjá 1604, að lm. Þórður kvarti við kóng undan einokunarversluninni, en hefur ekki áhyggjur (sbr. vísuna) af eftirfarandi:

Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 19:
,,Það sjónarmið, að lögbýlið væri eini eðlilegi vettvangurinn fyrir atvinnurekstur Íslendinga, hafði m.a. í för með sér þá almennu reglu, að enginn fékk að eiga eða reka bát nema hann ætti eða leigði jarðnæði á vegum lögbýlis".

Allt frá Grágás - sama orðalag í Jónsbók (1281) - var öllum frjáls veiði fyrir utan ,,netalög” lögbýlis, sem í túlkun löggjafans 1990 var 115 m út frá stórstraumsfjöruborði landareignar. Fyrrnefnd ,,almenna regla” studdist því ekki við nein lög. Heimild: Sigurður Líndal, Vestanglæður 2004, bls. 175.

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Ástand Íslands um 1700, bls. 287: ,,...allt frá síðmiðöldum var það stefna yfirvalda að takmarka möguleika verkafólks og smábænda á að stunda sjálfstæða útgerð.
Krafist var lágmarkseignar til að geta verið í þurrabúð og lausamennsku og þannig þurfti flest búlaust fólk annað hvort að vera ársvistum hjá bændum eða hjáleigubændur eða þurrabúðarmenn við sjóinn undir róðrarkvöðum lögbýlisbænda".

Ástand Íslands um 1700, bls. 351: ,,...aðgangur að auðlindum hafsins var takmarkaður við þá sem höfðu jarðarumráð og urðu þessar stéttir (lausa- þurrabúðar- og húsmenn) því að ráða sig sem sjómenn á bátum lögbýlisbænda stærsta hluta ársins og vera hjáleigubændur með eina eða tvær kýr, þurrabúðarmenn án grasnytjar eða húsmenn sem ýmist bjuggu á heimilum annarra eða héldu sjálfstætt heimili".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)

Ástand Íslands um 1700, bls. 370: ,,Lausamenn voru fámennur hópur óvistbundins verkafólks sem réði sig til skamms tíma hjá sveitabændum í kaupavinnu á sumrin og sjávarbændum um vertíð á veturna. Þess á milli flökkuðu þeir gjarnan um sveitir og seldu varning sem þeir höfðu keypt hjá kaupmönnum. Það fór heldur illt orð af lausamönnum fyrir prang, að selja dýra og ónausynlega vöru".
Þar segir og að árið 1350 hafi kóngur, Magnús smek Eiríksson (dóttursonur Hákonar konungs háleggs) hækkað lausamennskugjald úr 3,5 hundr. í 5 hundruð.
Eitt hundrað: 120 fiskar. Kýrverð um 4 hundruð.

Myndir

Einnig frá árinu 1603

  • ,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést
← 1603,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést1604 →Á Eyrum berja bændur á