Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1604
1604
1604

Á Eyrum berja bændur á

Hljóðbrot0:00

Lag Hani, krummi / Austankaldinn

ÁÁ Eyrum berja bændur ábúðarlokuþjóniað svoddan Þórður sveigir skráSvalbarðs- meður Jóni. .

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þórður hefur um skoðun skiptskelfist ei kónginn gabbaKristján fær sínum öxlum yppt:,,Annað sagðirðu pabba".

Glúmur Gylfason · 1604

Heimildir og samhengi

Þórður lm. SA Guðmundsson (~1524-1608) 80 ára, mótmælir skriflega nýjum verslunarháttum Kristjáns IV., þ.e., einokunarversluninni frá 1602, og hefur sem oftar samráð við lm. NV, Jón Svalberðing Jónsson, sbr. 1606 og 1576 og 1581, þegar þeir, lögmennirnir, létu lögréttu mótmæla því við Friðrik II., að Guðbrandi Þorlákssyni yrði veitt leyfi til að versla enda væri hann Íslendingur, sjá þar.
Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám: ,,Var á síðustu lögmannsárum fyrirsvarsmaður landsmanna ...gegn verslunaránauð".

Í LÍFTAUG LANDSINS, I, bls. 214, sér Gísli Gunnarsson að hér er ekki allt sem sýnist. Höfðingjar landsins höfðu nefnilega áður fyrr keypt mestan (mjöl)farm kaupmanna í heildsölu (hundraðskaupi) og selt hann síðan almúganum með 100% álagningu. Gísli nafngreinir Ara Magnússon, föður hans, þann prúða, og móðurafann, Eggert Hannesson.
Að lm. Þórður og þeir Svalberðingar mótmæltu verslunarleyfi Guðbrands biskups 1576 gæti bent til þess að þeir hafi haft sama háttin á, en Guðbrandur var þeim þó stórtækari í álagningunni, segir Gísli í Líftauginni. Hann keypti mjöltunnuna á 30 fiska en seldi á 120 fiska.

Bróðursonur lm. Jóns, Jón Sigurðsson, varð lögmaður 1606.
Eyrar: Stokks- og Háeyri (Eyrarbakki).

Í Sögu Eyrarbakka skýrir Vigfús Guðmundsson ,,búðarloka" þannig, að um hlera á hjörum, loku, hleypti þjónn viðskiptavini inn fyrir borðið svo valið gæti og skoðað varninginn sem þar var hafður utan seilingar annarra. Varla hefur slíkur umbúnaður þó verið kominn til sögu á þessum tíma og gildir þá skáldaleyfi.

Til handalögmála kom milli bænda og búðarþjóna á Eyrarbakka þetta ár og sendi Kristján IV. þá áminningu til þeirra dönsku um að sýna af sér kurteisi.
Í ,,Höndlað við Pollinn", bls. 31, segir Jón Þ. Þór að Íslandssagan geymi margar frásagnir af ryskingum og jafnvel limlestingum á verslunarstöðum fyrri alda og nefnir sem dæmi Jón Eggertsson (Magnúsarsonar prúða), sem yfirféll kóngsins menn, kaupmann og hans fólk á Akureyri.
(gabba: stríða)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefursouth.is (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)



Myndir

Einnig frá árinu 1604

  • Mættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,
← 1603Fátæklingur margur mát1604 →Mættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,