Árið 1603

t.d.

2 vísur frá árinu 1603
  1. 1603Lag: Það liggur svo makalaust ljómandi á mér - Stúd. 43

    ,,Hann Fúsi sem kallar sig lögmann” lést

    en langt er nú síðan að það hafði gerst
    sem Magnúsi þótti á þeim tíma verst
    og þess vegna vestur á firðina sest.
    Hæ, dúllía, dúllía .......
    1 erindi til viðbótar

    1603 deyr sm. Vigfús Þorsteinsson, Skútustöðum og Ási í Kelduhverfi, sonur Þorsteins í Reykjahlíð, Finnbogasonar Maríulausa Jónssonar Maríuskálds Pálssonar, d.~1470. Seinni kona Jóns Maríusskálds Pálssonar og langamma…

    Hlusta
    Námaskarð+3
  2. 1603Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Fátæklingur margur mát

    þá mændi út á fjörð
    því enginn fékk að eiga bát
    ef ekki fylgdi jörð.

    Þess skammt að bíða, sjá 1604, að lm. Þórður kvarti við kóng undan einokunarversluninni, en hefur ekki áhyggjur (sbr. vísuna) af eftirfarandi: Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 19: ,,Það sjónarmið, að…

    Hlusta
    Bátur í Skáleyjum