Árið 1655

t.d.

2 vísur frá árinu 1655
  1. 1655Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Fimmtíu og tveim úr bjargi bjargað

    bátar 8 í spón
    fengu úr Drangey eldað, argað
    enginn lífs beið tjón.

    Seiluannáll I, 306: ,,Það vor brotnuðu 8 skip við Drangey í einu veðri öll í spón, en menn komust upp í bjargið og héldu svo lífinu fyrir hjálp drottins. Þeir voru alls 52, liðu stóra neyð af sjávargangi, grjóthruni úr…

    Hlusta
    Drangey
  2. 1655

    Jörmunhlaup í Jökulsá

    jarðargróður kafnar
    hreiðrum sínum flýja frá
    fálkar, ernir, hrafnar.

    Seyluannáll (ritaður ~3ur árum síðar): ,,Jökulsá í Öxarfirði hljóp fram með ógurlegum vatnagangi. Tók af alla sanda yfir undir Skinnastaði og upp undir Kelduhverfi, svo ernir, fálkar og hrafnar drápust allt í sínum…