Árið 1883

t.d.

4 vísur frá árinu 1883
  1. 1883Lag: Þegar ég geng út og inn - Bj.Þ. 878

    Elliðaám til bóta brýr

    byrja hvalaveiðar.
    Söfnuður eystra orðinn frír
    á Eskifirði og Reyðar

    Brýr á Skjálfandafljót og Elliðaár; Ólafur Ketilsson (1864-1947) hreppstjóri, Höfnum, segir í Sunnlenskum sagnaþáttum Hildar, 1981, bls. 115, að máttartrén í Elliðaáabrúnum hafi verið strandgóss úr stórskipinu…

    Hlusta
    EskifjörðurSr. Lárus HalldórssonKirkjuvogur+6
  2. 1883

    Stáss- var oftast stofan köld

    þótt standi vitni bæri
    í baðstofu sig bæla um kvöld
    betra hyggjum væri.

    Á bls. 116 í ævisögu Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson, Ystafelli, sagðist sr. Stefán Jónsson, prestur Kinnunga 1880 til dd. 1888: ,,vanalega kunna betur við sig á litlu bæjunum en þeim stærri. Á smærri bæjunum…

  3. 1883Lag: Rösklega hún gengið gat - Bj.Þ. 887

    Stóðu lengur þrætur, þras

    en því að dauður stirðni
    Nesbóndi stefnu í Laufási las
    líkinu, séra Birni.
    1 erindi til viðbótar

    Sálmaskáldið í Laufási, séra Björn Halldórsson, f. 1823, lést 19. desember 1882. 4. janúar 1883 lét kærandi í landamerkjamáli, Einar Ásmundsson (1828- 1893), bóndi á nágrannajörðinni, Nesi, tvo stefnuvotta lesa líki sr.…

    Hlusta
    Séra Björn HalldórssonEinar ÁsmundssonLaufás+1
  4. 1883

    Ingibjörg Þorkels frá Óseyrarnesi

    átti þann bónda er Sigurður hét
    sá var nú allsenginn ónytjungspési
    athafnamaður sem bældi ei flet.
    2 erindi til viðbótar

    Fimmtudaginn 29. mars þetta ár reri skipi sínu úr Þorlákshöfn Þorkell Þorkelsson frá Óseyrarnesi með 14 manna áhöfn. Einn þeirra, 16 ára hálfdrættingur, Sigurður Þorsteinsson frá Flóagafli, ritar 1938 í bók um…