Elliðaám til bóta brýr
Lag Þegar ég geng út og inn - Bj.Þ. 878
Elliðaám til bóta brýrbyrja hvalaveiðar.Söfnuður eystra orðinn frírá Eskifirði og Reyðar
Heimildir og samhengi
Brýr á Skjálfandafljót og Elliðaár;
Ólafur Ketilsson (1864-1947) hreppstjóri, Höfnum, segir í Sunnlenskum sagnaþáttum Hildar, 1981, bls. 115, að máttartrén í Elliðaáabrúnum hafi verið strandgóss úr stórskipinu Jamestown, timburflutningaskipi, sem rekið hafði mannlaust um N. Atlantshaf í þrjú ár uns það á hvítasunnudagsmorgni 1881 lauk randi sínu við Kirkjuvog í Höfnum.
Sögu skipsins hefur Halldór Svavarsson skráð á bók Forlagsins:
Vefurfiskifrettir.is (opnast í nýjum flipa)
HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)
Mynd af brúnni er hér:
Myndfarm9.static.flickr.com (opnast í nýjum flipa)
Brýrnar voru endurgerðar úr steinsteypu 1920 með sama lagi, þ.e., kröppum beygjum við brúarendana - einkum vestast - þar sem slys hafði orðið 1915.
Þá voru gerðar nýjar steinsteyptar brýr á styrjaldarárunum síðari og eru að hlulta notaðar enn.
Heimild: Jón Birgir Pétursson, Meyvant á Eiði, bls. 28. Þar eru brýrnar sagðar frá 1882.
Árni Óla segir eftir Stefáni Filippussyni í Aldaskilum, bls. 151, að Hafnamenn sæki enn eldivið í stóran skipsskrokk árið 1888.
Hans Jakob Beck (1838-1920) á Sómastöðum, móðurafi séra Jakobs Jónssonar (1904-1989), er hvatamaður að fríkirkjusöfnuði á Eskifirði, kirkjan á Reyðarfirði, prestur séra Lárus Halldórsson, prestssonur frá Hofi í Vopnafirði, fv. prestur Valþjófsstöðum. (1938).
Sögu Fríkirkjumálsins rita: Síra Eggert Ó. Briem í Norðanfara XXIV 1885, bls. 45; Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, bls. 354.
Valdimar Haukur Gíslason, Vestanglæður, bls. 221:
,,Á 17. og 18. öld stunduðu einkum Baskar og Hollendingar hvalveiðar hér við land. ...Seint á 18. öld lögðust þessar veiðar niður vegna ofveiði. ...Íslendingar stunduðu hvalveiðar í smáum stíl inni á fjörðum”. Um þær er fjallað í bók Péturs Bjarnasonar, Suðureyri - athafnasaga, bls. 43.
Ameríkani, Thomas Roy, keypti aðstöðu á Vestdalseyri við Seyðisfjörð og stundaði hvalveiðar með frumstæðum hætti frá árinu 1863 og er á því ljót lýsing Gils Guðmundssonar í Andvara 1980 sem og hjá Torfa K. Stefánssyni Hjaltalín, Eldur á Möðruvöllum bls. 678.
Norðmaðurinn, Svend Foyn, frá Túnsbergi, byrjar 1883 hvalveiðar með nýrri tækni og vinnslu frá Vest- og síðar Austfjörðum með tilheyrandi mannvirkjum og stóð til 1913 (sjá 1915) þegar veiddir höfðu verið 33.000 hvalir og stofninum eytt.
Um 1870 fann Otto Wathne (1843-1898) síld á Seyðisfirði og brátt mátti sjá þar íshús, (1894) sparisjóð, verkalýðsfélag, tvö fréttablöð, rafveitu, síma, og tvö gufuskip voru í förum milli landa. Var Seyðisfjörður þá kallaður Klondike Íslands.
(Árni Gíslason: bls. 159. (1901) Gullkistan 2. útg.).