Stáss- var oftast stofan köld
Stáss- var oftast stofan köldþótt standi vitni bærií baðstofu sig bæla um kvöldbetra hyggjum væri.
stand: þjóðfélagsstaða
Heimildir og samhengi
Á bls. 116 í ævisögu Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson, Ystafelli, sagðist sr. Stefán Jónsson, prestur Kinnunga 1880 til dd. 1888: ,,vanalega kunna betur við sig á litlu bæjunum en þeim stærri. Á smærri bæjunum væri engin ,,stofa". Þar væri hann frystur í einrúmi".
Í sömu bók er lýst hitabreytingunni þegar fella verður einu kúna. Hún hafði staðið undir baðstofuloftinu og verið hitagjafi hússins.
Stofur á neðri hæð góðbúa á 19. öld hýstu heldri gesti, en stóðu tómar þess á milli og oftast óupphitaðar. Þegar tví- og þrímennt var í hverju rúmi í baðstofum þótti vegsauki að geta vísað gesti til sængur í stofu.
Helga Sörensdóttir, kennd við Vargsnes og Hólssel í Kaldakinn, uppi 1859-1961.