Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1883
1883
1883

Stóðu lengur þrætur, þras

Hljóðbrot0:00

Lag Rösklega hún gengið gat - Bj.Þ. 887

SStóðu lengur þrætur, þrasen því að dauður stirðniNesbóndi stefnu í Laufási laslíkinu, séra Birni.

Sigríður ekki kona kveifkvik í spori sig til þess dreifmyndina Einars ofan þreifandlitið niður í hlandkopp reif.

Glúmur Gylfason · 1883

Heimildir og samhengi

Sálmaskáldið í Laufási, séra Björn Halldórsson, f. 1823, lést 19. desember 1882.
4. janúar 1883 lét kærandi í landamerkjamáli, Einar Ásmundsson (1828- 1893), bóndi á nágrannajörðinni, Nesi, tvo stefnuvotta lesa líki sr. Bjarnar stefnu til dómþings að Grýtubakka 13. janúar. Þetta gerðist í stofu í Laufási.
Marghermt er að Einar hafi sjálfur lesið stefnuna, en það er starf stefnuvotta, sem munu hafa lesið nauðugir að kröfu Einars.

,,Það eru almenn munnmæli, að frú Sigríði hafi orðið það fyrst fyrir að taka ofan mynd af Einari, er valinn hafði verið virðulegur staður á baðstofuþili í Laufási, rífa hana í tætlur og kasta í hlandkopp". (Arnór Sigurjónsson: Einars saga Ásmundssonar, III,187).

Í Fnjóská, sem skiptir löndum norðan við Laufás, voru hólmar. Þar á meðal ,,Neshólmi" sem dró nafn af nágrannajörðinni, Nesi, þar sem bjó Einar Ásmundsson, fyrr alþingismaður.
Í Neshólma var æðarvarp sem séra Gunnar Gunnarsson, þá prestur í Laufási, hafði komið á fót og orðið að gagni 1843. Eigandi Ness, Ásmundur Gíslason, faðir fyrrnefnds Einars, bjó þá annars staðar.
Sr. Björn Halldórsson, eftirmaður sr. Gunnars, sagði sig við embættistöku hafa heitð því að standa vörð um eigur og réttindi kirkjunnar og taldi sér óheimilt að láta af hendi það sem hann hafði tekið við. Slíkt gætu yfirboðarar sínir einir gert.

Jón H. Þorbergsson leiðir fram sjónarvott að því í Ævidagar, bls. 252, að Einar hafi lesið Birni stefnuna þar sem hann lá líkbörunum.
Það stangast á við framburð Vilhjálms Bjarnarsonar bls. 187 í Ævisögu Einars eftir Arnór Sigurjónsson, en má sýna að Einar hafi verið viðstaddur og sagt fyrir verkum. Arnór grunar að það hafi rekið á eftir Einari, en dregið úr Birni, að 40 árin nálguðust sem Neshólmi hafði verið nýttur frá Laufási, og þar með e.t.v. unninn hefðarréttur.
Dómur féll Nesbónda, Einari Ásmundssyni, í vil.

Ævisaga Einars, III, bls. 207: ,,Á (vinsældir og virðingu Einars) felldi Neshólmamálið, og einkum það, að hann lét lesa stefnuna yfir sr. Birni látnum, mikinn skugga, einkum heima fyrir, í sveit hans og við Eyjafjörð. Sigurinn í málinu varð honum einskis virði".

Mynd Mats Vibe Lund af ósi Fnjóskár MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)

HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1883

  • Elliðaám til bóta brýr
  • Stáss- var oftast stofan köld
  • Ingibjörg Þorkels frá Óseyrarnesi
← 1883Stáss- var oftast stofan köld1883 →Ingibjörg Þorkels frá Óseyrarnesi