Ingibjörg Þorkels frá Óseyrarnesi
Ingibjörg Þorkels frá Óseyrarnesiátti þann bónda er Sigurður hétsá var nú allsenginn ónytjungspésiathafnamaður sem bældi ei flet.
Sigurðar víða að góðu er getiðgátu af sér skipstjóra, ráðherra og prestlagði í Ölfusá laxfiskanetiðlífið við ströndina á skrá hefur fest.
Endaði ei Sigurðar ævi á sjóeitt skipti glöggt þótt stæðiníræðisaldrinum náðu þónytsemdarhjónin bæði.
Heimildir og samhengi
Fimmtudaginn 29. mars þetta ár reri skipi sínu úr Þorlákshöfn Þorkell Þorkelsson frá Óseyrarnesi með 14 manna áhöfn.
Einn þeirra, 16 ára hálfdrættingur, Sigurður Þorsteinsson frá Flóagafli, ritar 1938 í bók um atburðarásina eftir að skipið hrakti á haf út í ofsaveðri og myrkri. Næsta land í þá stefnu var Suðurskautslandið.
Ein frönsk skúta hélt þar þó sjó og varð vör við mennina og tókst eftir tveggja tíma áraun að ná öllum um borð. Allt til 5. april stóð stórviðrið og létu Frakkar drífa, en að því loknu haldið til Vestmannaeyja, flaggað í hálfa stöng, svo að þaðan var róið til Frakkanna. Fjölmenni beið við bryggju og tók við skipbrotsmönnunum sem dvöldust þar við besta yfirlæti í 12 daga uns gaf að róa til Landeyjasands. Þar var þeirra beðið með óþreyju þar sem Vestmannaeyingar höfðu sent flöskupósta sem bárust á einum sólarhring til meginlandsins, en þar höfðu bátsverjar verið taldi af í 10 daga. (Sig. Þorsteinsson: Þorlákshöfn, bls. 19).
Í Sögu Selfoss l segir Guðmundur Kristinsson m.a. að Sigurður (1867-1950) hafi verið einkasonur Þorsteins Guðmundssonar í Flóagafli og Guðrúnar Bjarnadóttur ríka á Kotferju, Flóagafli og víðar. Sigurður réðist háseti til fyrrnefnds Þorkels í Óseyrarnesi og kvæntist 1882 dóttur hans, Ingibjörgu (1868-1950). Börn þeirra: Árni, Fríkirkjuprestur Rvk., Ásgeir, skipstjóri á Esju og Heklu, Sigrún, húsfrú Þorláks á Rauðará, Rvk., Þorkell, vélstjóri, m.a. á fyrsta nýsköpunartogaranum, Ingólfi Arnarsyni (faðir Salóme alþingisforseta), Sigurður Ingi, búfræðingur og lengi oddviti Selfosshrepps, móðurafi nafna síns, ráðherrans, Þóra Steinunn, húsfrú á Siglufirði. Tvö börn dóu ung.
1910 fluttu þau til Reykjavíkur og var Sigurður á skútum, togurum, við síldarmat, fasteignasölu, fræða- og ritstörf, ritaði blaðagreinar, flutti útvarpserindi og gaf út 3 bækur. Hann var ósammála próf. Guðna Jónssyni um frásögn hans í Rauðskinnu II af fyrrnefndum hrakningum, en þó skrifaði Guðni um hann látinn:
,,Var hann jafnan ómyrkur í máli, gat verið sleipur í rökræðum jafnt í ræðu sem riti. Hann var einn þeirra manna er gaf sér tíma til að mynda sér sjálfstæðar skoðanir á ýmsum málum og þeim hélt hann síðan fram, hver sem í hlut átti. Slíkt sjálfstæði er ekki vænlegt til almannalofs, en það er manndómsmerki. Sigurður var jafnan áhugasamur um þjóðmál og bindindismál og kirkjumál lét hann jafnan til sín taka. Hann var ætíð lifandi maður í sinni samtíð".
Í fyrrnefndri Sögu Selfoss er fjallað um þau Sigurð og Ingibjörgu vegna eignarhalds, búskapar og netaveiði frá jörðinni Helli, sem leggur til land undir vesturenda nýrrar Ölfusárbrúar, en fyrstu skóflustungu að henni tók samgönguráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrnefndur, barnabarnabarn söguhetju þessa pistils.