Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

19. öld · 237 vísur, í tímaröð
  1. 1801Lag: Jólasveinar 1 og 8

    Fyrir Alþing Yfirréttur

    þar Ísleifur, Gröndal og Magnús kljást
    Hólaskóli síðast settur
    við sálmabók margur illa brást.
    2 erindi til viðbótar

    Á einu og sama árinu lagði Magnús Stephensen (1762-1833) þrenninguna að velli í stafrófsröð: Alþingi, Djöfulinn og Hólaskóla. Heimildarmenn: Bjarni Thorarensen, dómari og skáld og Jón Þorláksson, prestur og þjóðskáld.…

    Hlusta
    Hólar í HjaltadalLeirgerður, Sálmabók 1801Leirárgarðar+6
  2. 1802Lag: Varnæs' Sølvbryllupssang:

    Norðanlands er stríð og streita

    stjórnarinnar kassi þurr
    Hólavinir hár sitt reyta
    Henderson og Arnljótur
    Magnús virti ei metnað Hóla
    menntun nyrðra lítið rædd
    ekki skeytti um þann skóla,
    ,,upplýsingin, holdi klædd”.

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín - í Sögu Biskupsstólanna, 668 og í Eldi á Möðruvöllum, 153 - segir, að í lýsingu Hendersons á heimsókn hans til Hóla 1814 sé sú heiftarlega gagnrýni á Magnús Stephensen, að á Hólum hafi…

    Hlusta
    Hólar í HjatadalMagnú Stephensen dómstjóriSteingrímur Jónsson biskup: "Guð annist Ísland"!+1
  3. 1802Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Djöfull Steinku dáraði

    dugði til þess Bjarni
    þó að illa áraði
    að hún varð með barni.

    Á Sjöundá á Rauðasandi, næst við Skor, bjuggu í tvíbýli Bjarni Bjarnason (1761- 4/10 1805) og Steinunn Sveinsdóttir (1767-1805) sem myrtu maka sína, Guðrúnu Egilsdóttur og Jón Þorgrímsson. Á Jóni vann Bjarni við Skor og…

    Hlusta
    SkorarvitiSkor fjærst, 7undá, Melanes næstMúrinn við Arnarhól+3
  4. 1802Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Bringukolls fann klerkur þjóf

    kauða ná- sér tengdan
    ekki lengi götur gróf
    í gálga batt og hengdi' h'ann.

    Íslendingabók um Árna Rafnsson, f. 1783: ,,Stal bringukolli og séra Jón í Glæsibæ hengdi hann”. Gísli Konráðsson, Bólu-Hjálmars saga II: ,,Árni umrenningur var Rafnsson, bróðurson Helgu, konu sjera Jóns…

    Hlusta
    Hjallur+1
  5. 1803Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Á mölinni eiga margir bágt

    og mæðan orðin slík
    að ,,Seltjarnarnesið, lítið og lágt”,
    sig lögum úr segir frá Vík.

    Reykjavík varð sérstakt lögsagnarumdæmi, bæjarfógeti skipaður Rasmus Fridensberg. Vík hafði aðeins verið kvosin sem kóngur fékk Innréttingum Skúla Magnússonar til umráða 1752, en nú var þeim lokað, og seldar veturinn…

    Hlusta
    Grótta á SeltjarnarnesiAusturmark Seltjarnarness Seltjarnarnes+3
  6. 1803Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Þá Snorri bjóst af stað frá Stað

    stefndi að Húsafelli
    þar niður drísildjöfla kvað
    uns dó í hárri elli.

    Snorri Björnsson, prestur, f. 3. okt. 1710 Höfn undir Hafnarfjalli, d. Húsfelli 15. júllí 1803. Prestur þar frá 1757, en áður á Stað í Aðalvík frá 1741. Borgfirðingar trúðu að hann hefði á Hornströndum aflað sér…

    Hlusta
    Kvíahellan, 186 kg. aflraunasteinn SnorraBók Þórunnar Valdimarsdóttur um Snorra á HúsafelliHúsafellskirkja+2
  7. 1803

    Í nýársmessu nýtt bar til

    nær oss gafst að heyra
    - þótt Magnús vildi meira -
    fíólína fagurt spil
    fangaði vort eyra.

    Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar l, 60: ,,1. janúar gjörði Markús Magnússon, stiptprófastur í Görðum, messugjörðina þar hátíðlegri en venjulega með samspili þriggja fíólína og telur Magnús Stephensen ... þennan…

  8. 1803

    Engu trúði Óli á Grím

    ólman glæpamanninn
    gabb og lygar, galdrarím
    grátt lék stiptamtmanninn.

    Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, l, bls. 63: ,,Grímur Ólafsson, prests að Kvíabekk, Jónssonar ... hafði verið í skóla að Hólum og ætlaði þá tvisvar eða þrisvar sinnum að kveikja í skólahúsinu. Síðan fýsti hann…

  9. 1804Lag: Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

    Úr lifenda tölu var Lúðvíki svipt

    sem lysti að Ólafur fyki
    ,,var þá sem steini af Stephensen lyft”
    stefnunni trúði að yrði nú rift
    en stjórnin þó hélt sínu striki.

    Skúli Magnússon og Jón Eiríksson voru menn sem tókst að gegna hæstu embættum ríkisins með sóma. Hundrað árum síðar kom svo Hannes Hafstein, ráðherra Íslands, og tókst m.a. að berja í gegn síma. Í kjölfar harðinda 18.…

    Hlusta
    Ludvig HarboeJón Eiríksso konferenzráð, faðir Ludvigs E.
  10. 1805Lag: Sá frjáls við lögmál

    Rektorinn utan hélt um haf

    hressti sig oft og mikið
    en hlýtur nú - og héðan af -
    að halda sig við (S)strikið

    Enginn skóli í Skálholti eftir jarðskjálftana 1784, en skólinn fluttur til Reykjavíkur 1786 og síðar nefndur Reykjavíkurskóli hinn fyrri. Hann stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt…

    Hlusta
    Helligåndskirken við Strikið, Kh.Bessasstaðir, kirkja og skóliHólavallaskóli
  11. 1805Lag: Enginn þarf að óttast síður

    Allt varð betra á Bessastöðum

    Björn og Scheving lofi hlöðum
    þarf ei fletta þar um blöðum
    að þar var haldið vel á spöðum.

    Reykjavíkurskólinn ,,fyrri”, frá 1786, sjá þar, stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt Hólavallakirkjugarði. Húsið þótti illa byggt, hélt hvorki vatni né vindum og kennslan sama marki brennd.…

    Hlusta
    Steingrímur Jónsson, rektor, síðar biskupBessastaðaskóli og kirkja 1834+3
  12. 1805Lag: Se den lille kattekilling

    I Gufudal spögelset gik amok

    da giftemålet fik knæk
    pigen var dansk med stövler og stok /
    og student Vigfús blev væk.

    Danskur draugur! Ísl. æviskrár: Vigfús stúdent Erlendsson, varð úti á Gufudalshálsi 28.11. 1805, sonur sr. E. Hannessonar í Gufudal og f.k. hans, Hólmfríðar Runólfsdóttur, prests Setbergi, Runólfssonar. Í ,,Þar minnast…

    Hlusta
    GufudalurGöngustafur - stok+2
  13. 1806Lag: Sá frjáls við lögmál

    Stjórnin er brá á Blöndals hátt

    og bú skyldi eiga hirði
    úrættis lét þá Ólafur fátt
    ef það var nokkurs virði.

    1787, í kjölfar harðinda 18. aldar ákvað stjórnin að selja konungs- og kirkjujarðir með góðum kjörum sem urðu enn betri vegna óðaverðbólgu á árum Napóleonsstyrjaldanna. 1797 var leiguliðum veittur forkaupsréttur að…

    Hlusta
    ÚthlíðarkirkjaMerki Búnaðarbankans gamla: "Sáðmaður fór út að sá"+3
  14. 1806Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Ógift móðir 8 barna

    auk eins í hjónabandi
    lík- á börum liggur þarna
    líkaminn, en andi
    einhvers staðar yfir sveif
    ofar heimsins grandi
    en framhjáhald að hemja bleif
    hreppstjóranna vandi.

    Lést Arndís Jónsdóttir (~1745-1806), ,,Barna-Arndís” frá Gamla-Hrauni milli Eyrarbakka og Stokkseyrar. Eignaðist ung vinnukona í Meðallandi 3 börn með giftum mönnum þar og dæmd af sýslumanni til að drekkjast, en dómnum…

    Hlusta
    Hreppstjóri í Vogum, Árni Kl. Hallgrímsson. Mynd viðkemur ekki þessu efni.Bærinn að Gamla-Hrauni+3
  15. 1807Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Við Öxnadal Guð eigi spar

    ógnarstuði var í
    opnaði sín augu þar
    Íslands Stradivari.

    Afburðamönnum oft líkt við ítalska fiðlusmiðinn Antonio Stradivari (1644-1737), á latínu Stradivarius. Hljóðfæri Stradivari þykja bera af, en nafn hans þýðir einmitt: ,,allt öðruvísi", og á vel við þá Jónas báða.…

    Hlusta
    Hraundrangur í ÖxnadalA. StradivariJónas / Öxnadalur / Hraundrangur
  16. 1807Lag: Vertu, góði Guð, hjá mér – SB 553

    Fyrir Ísland útlit dökkt

    af enskum drekum hafið krökkt
    Höfn þeir skjóta' á, skipum sökkt
    að Skerið sökkvi stendur glöggt.

    Jón Hjaltason: Saga Akureyrar I, 61: ,,Danir vildu ekki blanda sér í vopnaviðskipti stórþjóðanna (Frakka / Englendinga). ...sögðu nei (við að afhenda flota sinn Bretum). 30.000 enskir hermenn gerðu árás á Kh. og…

    Hlusta
    Skotárás enskra á Kaupmannahöfn 1807Ensk kúla í vegg á Strikinu
  17. 1808Lag: Sá frjáls við lögmál

    Að lánist fara við lög á svig

    og landsins stoðir bresti
    trúum að endurtaki sig
    á tvö hundruð ára fresti.
    1 erindi til viðbótar

    Í skugga Jörundar hundadagakonungs (1809) stendur að ósekju Gilpin, kapteinn á ensku herskipi sem tók land í Hafnarfirði 23. júlí, og sem með tilstyrk 24 manna áhafnar stríðsskips, ss Salomine, hafði mótspyrnulaust á…

    Hlusta
     Bjarni kaup- og útgerðarmaður SívertsenÆseif+4
  18. 1809Lag: Dvel ég í draumahöll

    Í Flatey Schevings framabraut

    en forgefins Jörgens amt
    lítillar kóngsins náðar naut
    nógu varð ríkur samt
    en arrestdelar dugðu skammt
    dró af Jörgen óðum
    sjálfum gerðist tugthús tamt
    á Tasmaníuslóðum.

    Jörgen Jörgensen (1780-1841), Jörundur hundadagakonungur, dubbaði 6 Íslendinga til lífvarða í einkennisklæðum. Af tilefni valdatöku Friðriks VI. höfðu flestir fangar verið náðaðir 9. júní. Þegar Jörundur kom, 25/6,…

    Hlusta
    Jörgen JörgensenFlatey á BreiðafirðiFlatey á Breiðafirði+3
  19. 1809Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Beittu álfar brögðum þar

    bóndi þoldi skell
    hreppstjórasonur heillaður var
    hvarf inn í Spákonufell.

    Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, Ísafoldarprentsmiðja 1941, bls. 76: „Davíð Guðmundsson bjó á Spákonufelli eftir föður sinn og átti Katrínu Einarsdóttur, Finnssonar frá Ey. Voru þeirra synir Einar,…

    Hlusta
    Frank Webster, watercolor on paper  12 x 16 in  $2,200Spákonufell
  20. 1810Lag: Vatnsdælingastemma

    Eiríkur fékk ekki brauð

    einhver réð hann klaga
    klerkinn sem að kaffi bauð
    kóngi hundadaga.

    Kapellán til Mælifells, sr. Eiríkur Bjarnason (1766-1843) á Hafgrímsstöðum, hafði veitt J. Jörgensen nýnæmið kaffi og fékk þá loforð hans fyrir kallinu þegar í stað og án þess að bíða andláts sr. Bjarna Jónssonar…

    Hlusta
    Mælifell í Skagafirði um 1900Jörgen JörgensenDjúpidalur,  Skagafirði+3