Ógift móðir 8 barna
Lag Dvel ég í Draumahöll
Ógift móðir 8 barnaauk eins í hjónabandilík- á börum liggur þarnalíkaminn, en andieinhvers staðar yfir sveifofar heimsins grandien framhjáhald að hemja bleifhreppstjóranna vandi.
Heimildir og samhengi
Lést Arndís Jónsdóttir (~1745-1806),
,,Barna-Arndís” frá Gamla-Hrauni milli Eyrarbakka og Stokkseyrar. Eignaðist ung vinnukona í Meðallandi 3 börn með giftum mönnum þar og dæmd af sýslumanni til að drekkjast, en dómnum breytt á alþingi í fjögurra ára tugthúsvist. Þar, við Arnarhól, eignaðist hún tvö börn sem hún kenndi Arnesi Pálssyni (1755) og reyndist þunguð af því þriðja er vistinni lauk. Arnes gekkst við einu barni, en hún nefndi norðlenskan útróðramann föður að því þriðja, en þá börnin samtals orðin 6 og hún um þrítugt.
Sem vinnukona í Hvaleyrarkoti við Hafnarfjörð eignaðist hún tvö börn - annað með húsbónda sínum, fráskildum manni. Hlaut hún þá lífstíðardóm til þrælkunar í spunahúsinu í Kaupmannahöfn, sem kom þó ekki til framkvæmda þar sem biðill birtist.
Þau náðu ekki saman áður en hann lést skyndilega meðan hún beið siglingar í Viðey.
Var henni þá sleppt og giftist Arndís að lokum Jóni nokkrum Jónssyni og eignaðist með honum sitt níunda og síðasta barn í heilögu hjónabandi.
Heimild: Brim á Bakkanum: Vefurbrim.123.is (opnast í nýjum flipa)
Guðni Jósson hefur skráð sögu Arndísar ítarlegar og er hana að finna í Sögu Hraunhverfis á Eyrarbakka, bls. 348 - 360. Niðurlagsorð þar: ,,Allt bendir til að hún hafi síst staðið að baki öðrum kynsystrum sínum í hennar stétt, hvorki að sálargáfum né líkamlegu atgervi. ... Ef hún hefði gifzt ung, mundi saga hennar sennilega hafa orðið í engu frábrugðin sögu annarra kvenna samtíðarinnar og nafn hennar ekki orðið annað en liður í heiðarlegri ættartölu síðari tíma manna."
Guðni gerir á bls. 10 þá grein fyrir bæjarnafninu, Gamla-Hraun, að Hásteinn Atlason, landnámsmaður á Stokkseyri hafi gefið Hallsteini, mági sínum frá Sogni, land: Framnes, sem hefur legið vestan landamerkja Stokkseyrar, þar sem Eyrarbakki er nú, en bæjarstæðið horfið í hafið eftir mörg sjávarflóð og nafnið, Framnes sömuleiðis og breytst í Hraun. Bæjarstæðið - ætlar Guðni - hafi flutst þangað sem nú er Gamla-Hraun.
Myndin af hreppstjóra, skrýddum frakka og húfu, er úr Vogum, Vatnsleysuströnd, og á ekki annað skylt við vísuna.