Árið 1897

t.d.

4 vísur frá árinu 1897
  1. 1897Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Koma núna kútterar

    kempur hyggja að seglum þar
    togarar þó tímans svar
    en Tryggvi er á fjármagn spar.

    Ásgeir Jakobsson, Einars saga Þorgilssonar, bls. 112, 126, úrdr: Fyrstu seglatogararnir keyptir notaðir frá Bretum er byrjuðu veiðar ári fyrr með stærri gufuknúnum togurum, 150 - 200 lesta. Seglatogararnir voru hér…

    Hlusta
    Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri LandsbankansKútter SigurfariBankastræti 3, Landsbanki Íslands til ~1900
  2. 1897Lag: Dvel ég í Draumahöll

    Collingwood fékk köllun til

    að kynnast Íslendingum
    hests á baki hér um bil
    hann reið landið kring um.
    Þorvaldur Bjarnar Egyptó
    eins og lófann þekkti
    breiddi út kort af Kaíró
    klerkur enska blekkti.

    Frá Íslandsreisum geta menntaðir erlendir ferðamenn á 18. og 19. öld um fleira en eymd og volæði. Í moldarhreysunum leyndust líka háskólagengin skáld og spakvitrir prestar sem gátu haldið uppi samræðum á forntungum um…

    Hlusta
    W. G. Collingwood (1854-1932)Séra Þorvaldur Bjarnarson á MelstaðMelstaðarkirkja, Miðfirði+1
  3. 1897

    Þá Herdís Benedictsen dó

    drengskapur hélt velli.
    Húsmæðraskóli hennar bjó
    og haldinn á Staðarfelli.

    + 23. ágúst Herdís Benedictsen: ,,Mikilhæf kona, glæsileg í sjón, talin af kunnugum ,,einhver hin besta og göfugasta kona" og heimili hennar og manns hennar (Brynjólfs Benedictsen kaupm., Flatey, Bogasonar fræðimanns -…

  4. 1897Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Dómkirkjuklukkan ding-dong slær.

    Doktor Valtýs fylgi grær.
    Leikfélagið lofsorð fær.
    Lagi grafofóninn nær. .
    2 erindi til viðbótar

    H. Th. A. Thomsen kaupmaður, sonur Ditlevs eldra (1855, 1857), gefur nýja stundaklukku í turn Dómkirkjunnar sem enn er þar og hefur það fram yfir þá eldri, Dómkirkjuúrið, að hún slær, - klykkir;…

    Hlusta
    Dómkirkjuklukkan slærDr. Valtýr Guðmundsson, prófessor, alþm.Sm. Benedikt Sveinsson, alþm. (eldri)+9