Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

20. öld · 153 vísur, í tímaröð
  1. 1901Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Mörgu gátu komið í kring

    kaupmenn Seyðisfjarðar
    þótt Hermann, meintu' h'ann Hollending,
    á hausinn setti Garðar.
    Bjarki og Austri, blöðin slyng,
    brugðu á deilur harðar.
    Múla sendu þeir á þing
    en Þorstein til Arnarfjarðar.

    ,,Hvalveiðar Norðmanna munu hafa haft meiri áhrif í íslenskum atvinnumálum en oft hefur verið látið í veðri vaka og heimildir eru fyrir því að í upphafi vélbátaútgerðar á Austfjörðum leituðu útvegsmenn gjarnan til…

    Hlusta
    Jón frá Múla t.h. og Hannes Hafstein við þingsetninguÞorsteinn Erlingsson, ritstjóriSeyðisfjörður um 1900+3
  2. 1901Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Saknar ei kerta sjónin bág

    sést út í horn og kanta
    olíu ljósalampana á
    lætur ei Dómkirkjan vanta.

    Olíulampar koma í Dómkirkjuna í stað kerta áður. Heimild: Þórir Stephensen: Dómkirkjan I, Rvk. 1996, bls. 203, 211. Sbr. og dæmisöguna um meyjarnar 10 í Matt. 25: 1-13.…

    Hlusta
    Dómkirkjan, Rvk.Olíulampi
  3. 1901

    Austfirðingum opnast heimur

    upp á gátt
    Seyðfirðingar tungum tveimur
    tala dátt.

    Árið 1902 er Þorsteinn Erlingsson orðinn ritstjóri Eimreiðarinnar, tímarits Valtýs Guðmundssonar. Þá ritar hann þar eftirfarandi um Seyðisfjörð, en þar var hann ritstjóri Bjarka áður: ,,Hér heyra menn margfalt meira til…

  4. 1902

    Kaupmenn úti öll með spjót

    aflsmuni og kynngi
    er Hallgrímur Kristins kom á fót
    KEA í Vöðlaþingi.
    1 erindi til viðbótar

    Stofnfundur forvera Kaupfélags Eyfirðinga, KEA, var haldinn á Grund 19. júní. 1886. Nefndist Pöntunarfélag fyrsta hálfa árið. Á aðalfundi 1902, þegar Kaupfélagið ,,var að grotna niður" skv. Páli H. Jónssyni, bls. 80 í…

  5. 1902Lag: Austankaldinn á oss blés

    Í byrjun vestra fum og fát

    en fóru síðan að með gát
    án þess róðrum yrði á lát
    árar lögðu þar í bát.
    1 erindi til viðbótar

    Fyrsti vélbáturinn - sjá þó 1917; 2. nóvember kom frá Danmörk 2ja hestafla vél og sett í sexæring sem Árni Gíslason (1868-1952) formaður, þá búsettur á Ísafirði, átti með Sophusi J. Nielsen verslunarstjóra og gerður út…

    Hlusta
    ÍsafjörðurÓsvör, BolungarvíkÓshólaviti, Bolungarvík í baksýn+3
  6. 1902Lag: Enginn kemur, enginn sést - Bj.Þ. 830

    Á Möðruvöllum varmi ei þverr

    vafurloginn funar
    fyrir endann samt ei sér
    sex nú taldir brunar.

    Stærstu brunar á Möðruvöllum í Hörgárdal: 1316 eða 1317, er drukknir munkar brenndu ofan af sér klaustrið, sem stofnað var 1296. 1712, brann staðurinn, en ekki kirkjan. 1826, brann amtmannssetrið. 1865 brann kirkjan, og…

    Hlusta
    Bók Torfa K. Stefánssonar HjaltalínMöðruvellir - málverk Ásgríms Jónssonar
  7. 1902

    Halldór Laxness léði svar

    lengi réð ei híma
    Karlamagnús meinti var
    mögur Fjósaríma.

    Halldór Laxness, rithöfundur, fæddist þetta ár, hann lést 1998. Iðnari maður vandfundinn jafnt við eigin ritun og lestur erlendra höfunda sem og innlendra frá hverri tíð og tíma. Gat því ávallt svarað bæði inn- og útúr…

  8. 1903Lag: Hver veit, hve nærri' er ævi endi

    Drukknaði Ólafur Davíðsson fróði.

    Um Dómkirkjuorganista skipt.
    Síðast kosið í heyrenda hljóði
    þá Hannesi til valda lyft.
    Hafsins silfur og hingað óð
    en hertur þorskur féll úr móð.
    3 erindi til viðbótar

    + Ólafur f. 1862, náttúrufræðingur Davíðsson, prests Hofi, Hörgárdal, Guðmundssonar hrstj. Vindhæli, og k.h. Sigríðar (1839-1920) dóttur Ólafs Briem (1808-1859) trésm. Grund, sonar Valgerðar (1822). ÓD gaf út…

    Hlusta
    Ólafur Davíðsson náttúrufræðingurHannes Hafstein ráðherraSkjaldarmerki Íslands 1593-1903+9
  9. 1903

    Jafnkosta var Jónas við

    járningar og söng
    aflinn sem og orgelið
    undirleik og töng.
    1 erindi til viðbótar

    Af starfi dómorganista lét 1903 Jónas Helgason (1839-1903), sem sem var 2. í röð dómorganista og tók við af Pétri Guðjónssyni (sjá 1840) sem lést 1877. Jónas Helgason hafði verið ,,reglumaður og samvikusamur með…

  10. 1904Lag: Vertu hjá mér, Dísa

    Hannes kann að yrkja,

    andann gáfur styrkja /
    elskar storminn,
    leysir hvern pólitískan hnút. /
    Í Hafnarfirði Lækinn
    til ljósa tókst að virkja /
    og leggur þar upp afla sinn
    botnvörpungurinn Coot.

    Íslenskur Íslandsráðherra búsettur á Íslandi, Hannes Hafstein (1861-1922). Þegar Íslendingur varð ráðherra Íslandsmála varð fjandinn fyrir alvöru laus á alþingi. Guðmundur Hálfdánarson, bls. 39 í Íslensk Þjóðfélagsþróun…

    Hlusta
    Reykdalsvirkjun, HafnarfirðiCoot+4
  11. 1904

    Vinstriflokkur hjó á hnút

    Hannes stjórna kunni.
    Nær fyrst koma Norðmenn út
    norsku Biblíunni.

    Frá og með Valtýskunni, 1897, hafði Alþingi farið fram á að Íslendingur gegndi embætti Íslandsráðgjafa og sætti sig við að byggi í Danmörk. Þegar ,,systemskiftet", þ.e., þingræði, varð í Danmörk 1901 með ríkisstjórn…

  12. 1904

    Siglufjarðar sköpum skjótt

    skipti að norskir kunnu.
    Síldin varð að silfri fljótt
    söltuð oní tunnu.

    Björn Dúason telur á bls. 83 í Síldarævintýrinu á Siglufirði, útg. 1988, að Norðmenn hafi byrjað hringnótaveiðar 26. júí 1904 (í stað rekneta) og þar með hafi síldarævintýrið byrjað fyrir alvöru, þ.,e., ári eftir að…

  13. 1905Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Bændur héldu á Hafsteins fund

    um hábjargræðistímann
    brýndu raust með hest og hund
    ;.; og hrópuðu niður símann ;.;

    1. ágúst: Símamótmælin. Hópreið 240 bænda af Suðurlandi og úr Borgarfirði til Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn, 244: ,,...miklar æsingar, söngur, lúðraþytur, ræðuhöld og kröfugöngur og sumir…

    Hlusta
    Hannes HafsteinSéra Stefán StephensenBjörn Jónsson, ritstjóri, ráðherra+3
  14. 1905Lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína

    Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning

    og þá væri komið meira en nóg
    ef Íslandi skyldi á skrælingjasýning
    skipað með svertingjum og eskimó.
    ,,Koloniudstilling?”, kolómögu'legt!
    konunglegri' erum vér allir af slekt
    þess konar framferði þolir ei rýning
    þvílíkan dónaskap aldregi þekkt.

    Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, 459: ,,Árið 1889 var í París efnt til ,,heimssýningar". ,,.Inngangshlið ...var gríðarmikill járnturn sem kenndur var við höfund sinn, Gustave Eiffel, en sýningin var…

    Hlusta
    Knud ZimsenFjallkonanEskimói, Knud Rasmussen landkönnuður+11Myndband
  15. 1905Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Orð um smjör- og ostadalla

    ollu reiðibáli
    bændum þótti heldur halla
    Halldór réttu máli.
    1 erindi til viðbótar

    Einar Laxness, Íslands saga II, bls. 86: ,,Þegar sauðasölu lauk, 1896, komust bændur í mikla erfiðleika með afurðir sínar; var nokkur bót á því ráðin með stofnun rjómabúa, sláturhúsa ... og vandaðri verkun saltkjöts…

    Hlusta
    Halldór Vilhjálmsson, skólastjóri á HvanneyriRjómabúið BaugsstöðumKongl. Landbúnaðarháskólinn á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn+5
  16. 1906Lag: Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618

    Friðrik áttundi tróð á trón

    togari í smíðum heita skal Jón
    öndunum mistókst óperasjón
    Alliance, Dagsbrún og telefón.

    Kongen er död! (Chr. IX.) Leve kongen! (Fr.VIII.). https://www.youtube.com/watch?v=r8rb201KPIM Margir helstu menn þjóðarinnar spiritistar. Fremstir fóru ritstjórarnir Einar H. Kvaran (1859-1938) og Björn Jónsson…

    Hlusta
    Friðrik VIII.MiðilsfundurVerkamannfélagið Dagsbrún+4
  17. 1906Lag: Augun mín og augun þín

    7. apríl ei mun né má

    úr minni voru snarast
    frá höfuðstaðnum horfðu á
    heila skipshöfn farast.

    ,,Einn mesti óhamingjudagur sem yfir Ísland hefur komið” sagði séra Ólafur Ólafsson (1855-1937). Staddir milli Viðeyjar og lands röðuðu 20 skipverjar kútters Ingvars sér í reiða og á borðstokk. Mörg hundruð Reykvíkingar…

    Hlusta
    Viðey: Akkeri Ingvars, sem kafarar DiveExplorer sóttuKafarar DiveExplorer með akkeri IngvarsMinningarskjöldur um áhöfn Ingvars +1
  18. 1907Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Bjóða má nú ekki í

    ómagana framar.
    Flest menn gera fjörunni í
    finnist ekki kamar.

    Ný lög taka gildi á sviði almannaheilla og skyldi hætt að bjóða upp hreppsómaga - eða öllu heldur bjóða niður. Ekki hafa þessi lög verið virt ef marka má frásögn í Nesfréttum 11. tbl. 2018, bls. 8: www.borgarblod.is um…

    Hlusta
    Maður í fjöru+4
  19. 1907Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Falskir miðlar féllu í trans

    fólkið kónginn sá
    Sigtún við Ölfusá.
    1 erindi til viðbótar

    Um falska miðla, sjá 1906 og Öldina okkar. Friðrik VIII. kom til Íslands ásamt 40 dönskum Þjóðþingsmönnum og riðu m.a. til uppsveita Árnessýslu eftir vegum sem gerðir höfðu verið vagnfærir, en kóngur lét sig þó ekki…

    Hlusta
    TryggvaskáliMiðilsfundurSláturfélag Suðurlands, Selfossi+6
  20. 1907Lag: Hvað boðar nýárs blessuð sól?

    Skal fræðsla metin góð og gild

    gagnlegt að nemi börnin klók:
    tíu ára öll skólaskyld
    að skrifi, reikni' og lesi' á bók.

    Fræðslulög um Kennaraskóla (frá 1908) og skólaskyldu barna 10 til 14 ára þar sem ríkissjóður greiði kennaralaun og sjái fyrir skólahúsnæði. Kennaraskólinn við Laufásveg reistur í beinu framhaldi og tekinn í notkun…

    Hlusta
    Kennaraskólinn 1908+1