Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1905
1905
1905

Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning

Hljóðbrot0:00

Lag Komdu og skoðaðu í kistuna mína

ÞÞjóðhollum landsmönnum þótti það píningog þá væri komið meira en nógef Íslandi skyldi á skrælingjasýningskipað með svertingjum og eskimó.,,Koloniudstilling?”, kolómögu'legt!konunglegri' erum vér allir af slektþess konar framferði þolir ei rýningþvílíkan dónaskap aldregi þekkt.

Glúmur Gylfason · 1905

Heimildir og samhengi

Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, 459: ,,Árið 1889 var í París efnt til ,,heimssýningar". ,,.Inngangshlið ...var gríðarmikill járnturn sem kenndur var við höfund sinn, Gustave Eiffel, en sýningin var lofsöngur til nýlendustefnunnar. ,,Frumstæð" þorp úr nýlendum Frakka voru endursköpuð í miðri stórborginni."
Þar voru mennskir nýlendubúar meðal sýningargripa.

Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fj... til, bls. 29: ,,Fátt fór meira í taugarnar á fólki hér á landi en að vera sett á bás með þegnum Danakonungs á Grænlandi, að ekki sé minnst á blámenn (svertingja) í dönsku nýlendunum”.

Uppnám varð á Sögueyjunni þegar fréttist að halda ætti í Tívolí ,,Dansk Koloniudstilling” tileinkaða Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og eyjum Dana í Vestur-Indíum. Skrælingjasýning var hún kölluð hér. Óx nú andúð á Dönum sem aldrei fyrr. Maðkað mjöl hjóm eitt hjá því að vera settir á bekk með eskimóum og negrum. Hér kunna að hafa ráðist örlög Uppkastsins 1908 enda varð Hannes rh. að segja sig úr sýningarnefndinni, en það dróst hjá Valtý Guðmundssyni og var hann þá rekinn úr Stúdentafélaginu í Höfn.

Hneykslið var a.m.k. ekki gleymt að ári þegar sært stoltið gat ekki þegið Ingólfsstyttuna af Kaupmannahafnarhreppi.
Svo að sýningin færi ekki út um þúfur var nafninu breytt í ,,Dönsk nýlendusýning ásamt sýningu fyrir Ísland og Færeyjar” og sæti Hannesar í nefndinni, tók Helga Bryde Vídalín, fyrr frú Jóns Vídalín (1857-1907) konsúls breska heimsveldisins, en þau voru ástríðufullir safnarar fornra listmuna.
Sótti nú frúin heim til sín í Höfn postulíns- og silfurborðbúnað auk forn- og listmuna, m.a. frá Egyptalandi, og sýndi sem dæmigert íslenskt heimili, sem þá voru flest með moldargólfi og veggi af torfi og grjóti.

Hér sést sýningarbásinn: HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

En Danir höfðu sýnt sitt rétta andlit svo Ingólfsstyttan skyldi ekki þegin. En móðurinn rann skjótt af þeim sem heitið höfðu að kosta Ingólfsstyttuna svo að danskir kaupmenn á Íslandi keyptu (af skömmum sínum?) óselda happdrættismiða í styttuhappdrættinu. Vinninginn, tvílyft einbýlishús í Þingholtunum, hlaut biskup Íslands, sem átti þá þegar stórhýsið Laufás, sem enn stendur við samnefndan veg.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Helga var dóttir J. P. T. Bryde sem átti öflugar verslanir í Vestmanneyjum, Vík í Mýrdal og í Reykjavík á horni Hafnarstrætis og Aðalstrætis, nú Sæta svínið.
Tvö þau síðari verslunarhúsin eru enn í notkun. Meðan þau Jón Vídalín voru hjón bjuggu þau í Mjóstræti 3, Vinaminni, og héldu þar veislur sem getið er í Við sem byggðum þessa borg, bls. 85 í lausu máli og bundnu máli í alþingisrímum.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Þetta voru þeir tímar þegar flestir álitu að hvítir (karl)menn væru öðrum æðri. Hér var litið niður á eskimóa og negra og í Evrópu höfðu gyðingar verið ofsóttir um aldir. Vanmetakennd bárum við þó gagnvart ónefndri þjóð, sem ásamt Þjóðverjum virti Íslendinga fyrir að hafa varðveitt heimildir um yfirburðakynstofninn norræna sem og tungu hans í riti og máli. Lifandi eintök af eskimóum og negrum munu hafa átt að vera til sýnis og e.t.v. verið það eins og í París 1889. Aldrei stóð víst til að sýna með þeim hætti Íslending eða Færeying enda hvítir.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

I Sögu LX-2 2022, bls. 219 fjallar Jón Ólafsson um ritið DENMARK AND THE NEW NORTH ATLANTIC ..., en þar er Nýlendusýningin til umfjöllunar og segir Jón sjálfsmyndarsköpun Norður-Atlantshafssvæðisins einkennast af sjálfsupphafningu og flótta - mikilmennskubrjálæði og minnimáttarkennd.
,,Ofmetnaður hjálendunnar þegar hún telur menningu sína jafnvel æðri menningu herraþjóðarinnar er aldrei langt undan og heldur áfram löngu eftir að fullu sjálfstæði er náð, eins og sjá mátti á árunum fyrir hrun".

Heimildir og tilvísanir:
Í Sögu LIX-1, 2021, bls. 227 fjallar Helgi Þorláksson um ,,skrælingjasýninguna".

Vefurdanmarkshistorien.dk (opnast í nýjum flipa)
Tvennir tímar, bls. 158.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Ævisaga Knuds Zimsen, bæjarstjóra, sem fenginn var til að standa fyrir fjársöfnuninni til styttunnar;
Kh. sem höfuðborg Íslands II, mynd bls. 391 úr ísl. sýningarskálanum sem Þórarinn Tulinius gaf "og lét sig engu skipta í hvaða félagsskap við vorum", segir Matthías Þórðarson í viðtali við Valtý Stefánsson í Myndir úr þjóðlífinu, 267, skráð 1947.
Vefurdanmarkshistorien.dk (opnast í nýjum flipa)
Vefurpodtail.com (opnast í nýjum flipa)

Vefurheimspeki.hi.is (opnast í nýjum flipa)
FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)

Hafa ætti tíðarandann í huga því að þegar t.d. Hannes Hafstein fæðist eru enn fjögur ár í að þrælahald verði bannað í USA. Ráðandi voru hugmyndir um yfirburði hvíta kynstofnsins, sem ferjað hafði svarta menn eins og varning frá Afríku til þrælavinnu í Ameríku og kastað þeim lifandi í sjóinn ef vistir þraut.

Vefurhringbraut.frettabladid.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Fordómar:

Vefurutvarpsaga.is (opnast í nýjum flipa)

,,Die Überhöhung der eigenen Nation führte immer häufiger zur aggressiven und hasserfüllten Ausgränsung jener die nicht Teil von ihr waren. In den USA erreichte das Lynching (aftökur án dóms og laga) einen Höhepunkt, die Schwarzen wurden wieder fast vollständig politisch entrechtet (réttlausir), in Deutschland, Osteuropa un Frankreich stieg der Antisemitismus, es war das Zeitalter der Imperialismus und der Nationalismus".

Vefurspiegel.de (opnast í nýjum flipa)

Vefurutvarpsaga.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1905

  • Bændur héldu á Hafsteins fund
  • Orð um smjör- og ostadalla
← 1905Bændur héldu á Hafsteins fund1905 →Orð um smjör- og ostadalla