Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1905
1905
1905

Bændur héldu á Hafsteins fund

Hljóðbrot0:00

Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

BBændur héldu á Hafsteins fundum hábjargræðistímannbrýndu raust með hest og hund;.; og hrópuðu niður símann ;.;

Glúmur Gylfason · 1905

Heimildir og samhengi

1. ágúst: Símamótmælin. Hópreið 240 bænda af Suðurlandi og úr Borgarfirði til Reykjavíkur.
Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn, 244: ,,...miklar æsingar, söngur, lúðraþytur, ræðuhöld og kröfugöngur og sumir ruddust inn í anddyri alþingishússins og hrópuðu: niður með ráðherrann".

Ritsafn Eyjólfs Guðmundssonar, 343 - um viðbrögð við síma sem lagður var milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur: ,,Kallað var það fyrirtæki óhóf og of dýrt fátæku landi, eiginlega Satansverkfæri”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Guðjón Friðriksson fjallar um símamálið frá báðum hliðum í ævisögu Einars Benediktssonar I, 317-319.

Einnig Þórir Stephensen í bók um afa sinn, Stefán sterka, 2018, sem gegndi kalli Björns Jónssonar, þá ritstjóra, og smalaði bændum eystra til fundarins. Sr. Þórir hlífir afanum ekki: ,,..þeim (bændum) hjartans mál að bjarga landinu frá þeim fjárhagsvoða og frelsissviptingu sem þeim hafði verið talin trú um (af Birni) að símamálið væri”. Bls. 264: ,,...einboðið að kallaði á afbrýði sem aftur gat af sér öfund, illmælgi og pólitíska andstöðu.” Nefnir sr. Þórir til þeirrar sögu einkum Björn Jónsson, sem hafi í blaði sínu, Ísafold, verið eindrægnastur stuðningsmaður símans áður en Hannes Hafstein varð ráðherra.
Sami snúningur og hjá Einari Benediktssyni 1897, sem hann þó viðurkenndi: ,,Í mér eru tveir menn".

Ágúst á Hofi leysir frá skjóðunni, bls. 17 greinir frá því að prestar í Húnaþingi hafi við messur safnað undirskriftum gegn símanum en fæsta hafi þurft að eggja til andstöðunnar, sem náði langt inn í raðir þeirra er annars fylgdu Heimastjórnarflokki Hannesar Hafstein þótt þeir létu ekki hafa sig til þess að skrifa undir.
Tvo valinkunna Valtýinga sendu Húnvetningar til mótmælafundarins í Reykjavík.
,,Þegar síminn svo kom breyttist andúðin í aðdáun og fyrsta símtalið varð stórviðburður í ævi hvers manns og skoplegar sögur gengu milli bæja um fyrstu orðaskipti í símanum" - segir Ágúst.

Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar, bls. 300: ,,Trúlega hefur ekki um annað mál verið harkalegar deilt í Skagafirði en símamálið ...Þar áttust við harðsnúnar fylkingar ...fúkyrði gengu á víxl í blöðunum, en heima fyrir létu skagfirskir fyrirmenn hendur skipta”.

Einn ræðumaðurinn á (bænda)fundinum 1. ágúst var sálfræðingurinn dr. Gjuðmundur Finnbogason (1873-1944),og talaði á móti símanum og varð - óvænt - ekki fræðslustjóri 1907. (Tilvísun: Stefán Einarsson, Skáldaþing, bls. 166).

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1905

  • Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning
  • Orð um smjör- og ostadalla
← 1904Siglufjarðar sköpum skjótt1905 →Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning