Póstur um Hellisheiði fór
hestlaus í veðri stóru
hamaðist stormur, hregg og snjór
hvergi sá þar glóru
landfógeta leitin bar
langa vegu fóru
uns kenndu menn að Klemens var
kominn í bland við Jóru.
Varð úti, á Hellisheiði syðri, austanpósturinn Klemens Þorsteinsson. f. um 1750. ,,Hafði heilmörg (119) bréf, peninga og silfur í pósttöskunni, hún fannst aldrei, en hann löngu síðar”, segir í Söguþáttum landpóstanna…
Hlusta