Vísur eftir Glúm Gylfason um

Annálsverð tíðindi á árunum1540 til 1950

Ein eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs færð í rím, frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO — með heimildum, myndum og hljóðbrotum.

vísur
868
ár
412
aldir
5

Vísurnar

t.d.

18. öld · 211 vísur, í tímaröð
  1. 1701Lag: Snemma lóan litla í

    Útskipun er einkar fljót:

    utan siglt með torf og grjót
    tæpt að þjóðin tórði.
    Valdabarátta leið og ljót:
    sé Lárus með er Páll í mót
    kóngur er Friðrik fjórði.
    4 erindi til viðbótar

    Harald Gustafsson: Mellan kung och allmoge, Stockholm 1985, bls. 32; ,,Kring 1700 hotades hela det isländska samhället av ekonmisk kollaps". Um yfirstandandi hungursneyð, sjá 1700. Í þjóðernisrómantískri söguritun fyrri…

    Hlusta
    Friðrik IV.VíðidalstungaL. Gottrup og Katrín Pétursdóttir+6
  2. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Asklok fyrir himin höfðu

    höfðingjar þessa lands
    af þeim er Íslands sögu sögðu
    sæmdir heiðurskrans.
    1 erindi til viðbótar

    Axel Kristinsson, Hnignun, bls. 56: ,,Pólitískar einingar þurfa sínar goðsagnir”. Íslandssaga Jónasar Jónssonar 1916: ,,Snorri veginn fyrir að vilja vernda frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar". Tilvísun: Helgi…

    Hlusta
    Jónas Jónsson frá Hriflu kennslubókarhöfundurPróf. Árni Magnússon+1
  3. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Asklok fyrir himin höfðu

    höfðingjar þessa lands
    af þeim er Íslands sögu sögðu
    sæmdir heiðurskrans.
    3 erindi til viðbótar

    Jón Aðils, um aldarfarið á fyrsta fjórðungi 18. aldar. Ævisaga lm. Odds Sigurðssonar bls. 85-6: ,,...má svo að orði kveða að allt væri í uppnámi í landinu og hver höndin upp á móti annarri en slík tímabil eru einmitt…

    Hlusta
    Askinn smíðaði Ólafur Sigurjónsson, Sigga á Grund skar út
  4. 1702Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Án þess nokkur örmum lyfti

    við Árhraun Hvítá kyrr
    hún þar sínu rennsli rifti
    sem Rauðahafið fyrr.
    1 erindi til viðbótar

    Fitjaannáll: ,,...þornaði Hvítá hjá Árhrauni á Skeiðum nær í 2 daga hvað og skeði 1594.” Hestsannáll segir: ,,Hvítá tapaði renslu sinni" svo að ,,þur varð hjá Árhrauni 1702" 2. Mósebók 21-22: ,,Þá rétti Móse hönd sína…

    Hlusta
    Moses - RauðahafiðHvítá séð af Hestfjalli +1
  5. 1703

    Þórdís til Skálholts er flúin í felur

    fólkið í landinu hreppstjóri telur
    Prentsmiðju Brynjólfur biskupi selur
    úr bókunum Arnæus velur - og stelur.

    Þórdís Jónsdóttir (1704) flýr til systur sinnar, Sigríðar (d. 1730) biskupsfrúar undan eiginmanninum, jungkæra Magnúsi Sigurðssyni (1651-1707), Bræðratungu. Þær systur dætur Guðríðar Þórðardóttur (1645-1707) Jónssonar…

    Hlusta
    Prentsmiðja - Gutenberg 1447BræðratungaBækur
  6. 1704Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

    Magnús Skálholts- mæðir stól

    og mótmælir í ræðum
    að Arnæus og Íslandssól
    aðeins fletti skræðum.

    Fitjaannáll II, 354: ,,Á alþingi dæmdar stórar sektir á Magnús Sigurðsson í Bræðratungu (1702) fyrir óskikkanlegt hneykslunarbréf, sem hann hafði tilskrifað prófessor Árna Magnússyni”. Árni var þá staddur í Skálholti er…

    Hlusta
    Prófessor Árni MagnússonÍslandsklukkan kallar Sigríði yngri Jónsd. þessu nafniSkálhot+3
  7. 1704Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 868

    Mjög nú þótti merkilegt

    og margur þar um rengdur
    að engri á Þingi í ár var drekkt
    og enginn þjófur hengdur!

    Enginn hengdur á Þingvöllum, en skv. Hestsannál, II, bls. 555, var hengdur þjófur á Kjalarnesi og skv. Öldinni átjándu var Steinunni, konu Sæmundar Þórarinssonar, annars tveggja bænda frá Árbæ, drekkt í Kópavogslæk og…

    Hlusta
    Drekkingarhylur í Öxará, Þingvöllum+3
  8. 1705Lag: Sá frjáls við lögmál

    Páll Vídalín gerði við Sigurð sætt

    síðar þó meira vildi
    en sá sem hyggst deila við Einarsnesætt
    athuga gang sinn skyldi.

    Már Jónsson: Árni Magnússon – æfisaga: ,,Um sama leyti (1705) sömdu Páll og Sigurður Björnsson um það fyrir milligöngu Árna (Magnússonar) að Páll tæki við lögmannsembættinu en Sigurður héldi hálfum launum”. Þremur árum…

    Hlusta
    VíðidalstungaPróf. Árni MagnússonUlrik Christian Gyldenlöve, stam.+3
  9. 1706Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Gríska, hebreska, útræði og

    eldur geðjast Páli
    - árar, djöflar, áratog -
    ,,Undir hamrastáli”.

    + séra Páll Björnsson í Selárdal f. 1621, var manna kunnugastur öllu því sem vísan greinir frá: fornmálafræðingur og ritaði bók á latínu um galdur, Character bestiæ - á íslensku: Kennimark kölska, útg. 1976 af Ísafold.…

    Hlusta
    Arnarfjörður, KetildalirSkútaSr. Páll Björnsson, skútusmiður Selárdal (1621-1706)
  10. 1707Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Nýtilegu' ei neinu hent

    neyðin til þess rekur
    ei var Gísla görmum brennt
    grafir kvenþjóð tekur.

    Desjamýrarannáll, V, 284: ,,Kom sú mikla plága á Ísland, sem kallast stórabóla ...Þessi sótt kom út á Eyrarbakka í fötum íslensks manns, Gísla Bjarnasonar frá Vetleifsholti. ...Tal manna er að fötin hafi verið í…

    Hlusta
    Stórabóla
  11. 1707Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831

    Í sjötugt skipum fjórum fátt

    til fiskjar úr Bjarneyjum reru
    en fimmtíu eftir bólu brátt
    bátar ei aftur sneru.

    Lýður Björnsson: Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu, bls. 127: ,,Gengu 66 skip til fiskjar úr Bjarneyjum á Breiðafirði fyrir bóluna, en aðeins 15 eftir að henni lauk". (Skv. Jarðabók Árna og Páls.).

  12. 1708Lag: J. McGranahan 1883, Sálmabók 529

    Enginn var edrú á Þingi

    Oddur og Beyer við skál
    slöguðu og hrötuðu í hringi
    og heldur var stirt um mál
    nokkuð í stúf þó að stingi
    styðja sig máttu við Pál
    þeim helvítis Húnvetningi
    gegn höfða vildu þeir mál.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Háttvirt Alþingi Íslendinga: Jón Aðils, Saga Odds Sigurðssonar, bls. 16: ,,...þinghaldið fór að jafnaði meira og minna í handaskolum. Menn komu of seint…

    Hlusta
  13. 1708Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Fullmektugur orðinn er

    Oddur með Páli Beyer
    gerðir þeirra varla ver
    Vídalín né þegir.
    1 erindi til viðbótar

    Am. Chr. Möller fær leyfi stam. Gyldenlöve til að dveljast í Danmörk og setur stiftamtmaður Odd Sigurðsson umboðsmann sinn með konungsleyfi, en am. Möller fær fógeta, Paul Beyer, sitt umboð ,,og var þeirra uppgangur…

  14. 1709Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831 (Augun mín)

    Á er skollið enn eitt stríð

    við erfðafjendur, Svía,
    Íslandsskip í erg og gríð
    ógnað, sökkt og flýja.

    ,,Norðurlandaófriðurinn mikli" stóð frá 1700 um yfirráð á Eystrasalti og vildu Danir endurheimta Skán. Börðust Svíar einir á móti Rússum, Pólverjum, og Prússum auk Dana og Saxa frá 1709. Svíar gáfust upp í árslok 1719…

    Hlusta
    Sænskur sigur við Narva áður en Danir blönduðust í stríðið
  15. 1709Lag: Sá frjáls við lögmál

    Veraldarhyggja og höfðingjasnið

    Hólabiskup markar
    en mölur eyðir, raki' og ryð,
    í Ritningunni snarkar.
    1 erindi til viðbótar

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Saga Biskupsstólanna, 617: ,,Biskup (frá 1697) Björn Þorleifsson, d. 1710, var höfðinglega sinnaður, hélt stórar veislur og hafði mikið sveinahald. Vísitasíuferðir Björns voru…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819
  16. 1709Lag: Kross á negldur meðal manna

    Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja

    - þeirra ein og sama rekkja -
    gáðu lítt að gæta sín
    móðir varð en eigi ekkja
    ógiftri var skylt að drekkja
    en vænt að heita Vídalín.

    Íslenskar æviskrár V, 118, úrdráttur: Þórður Vídalín (Þorkelsson Arngrímssonar lærða) (~1661-1742). Rektor, læknir. Foreldrar: Síra Þorkell Arngrímsson í Görðum á Álptanesi og kona hans, Margrét Þorsteinsdóttir prests í…

    Hlusta
    Stafafell í Lóni austurDrekkingarhylur í Öxará á Þingvöllum
  17. 1710Lag: Herra Guð í himnaríki

    Holdsveiki Björn til bana dró

    biskupinn þótti ei laginn
    þá Passíusálma til prentunar bjó
    og prýða vildi braginn.

    Tilvísun í Torfa K. Stefánsson Hjaltalín: Saga Biskupsstólanna, bls. 633: Lést Hólabiskup Björn Þorleifsson (1692, 1709) er bar nafn móðurafa síns, Björns frá Saurbæ, Rs., Magnússonar prúða. Hann keypti prentsmiðjuna af…

    Hlusta
    Holdsveikur maðurHólar í HjaltadalPassíusálmar Hallgríms Péturssonar, útg. Smára Ólasonar+2
  18. 1711Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Endar og byrjar Skúlaskeið

    Skúla ei mótbyr ægir
    Reykjavíkur varðar leið
    Völl og Akra plægir.

    * 12. desember sýslumaður, Innréttingaforstjóri og fógeti Skúli Magnússon; langafi hans í föðurætt og alnafni, Goðdalaprestur, dó daginn eftir. Íslendingabók kveður Skúla eldra hafa verið frægan ræðumann. Saga frá…

    Hlusta
    Skúli fógeti Magnússon
  19. 1712Lag: Jólasveinar 1 og 8

    ,,Til meins er öllum Oddur gerður

    óvinum jafnt vinum sín”
    ódæll var og er og verður
    yfir þingi og landi gín.
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Í bréfi til Páls Vídalín í desember 1712 segir Jón biskup Vídalín m.a.: ,,öllum er hann (Oddur) til meins gerður, bæði vinum og óvinum”. Einnig að hann…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve, stam.Jón VídalínÖxarárfoss
  20. 1712

    Til Hafnar Árni halda má

    handrita´og bókalaus
    Því kóngsins hirð vill heyra og sjá
    hvert sé allt hans maus.

    Auk stríðs Dana við Svía geisar taugaveiki í Kaupmannahöfn og fjárhagur ríkisins afleitur. Rifjast þá upp fyrir stjórnendum að í tíu ár hafi Árni Magnússon verið hátt launaður á Íslandi og finnst nóg komið og kalla hann…