Útskipun er einkar fljót:
Lag Snemma lóan litla í
Útskipun er einkar fljót:utan siglt með torf og grjóttæpt að þjóðin tórði.Valdabarátta leið og ljót:sé Lárus með er Páll í mótkóngur er Friðrik fjórði.
Illa gáfust ráð þau ræsumrétta fé þeim svaltvar eins og að gefa gæsumgleypir fyrsta allt.
Heiðri umfram aðra sæmdir- opnar stóðu dyr -ei voru til dauða dæmdirdándimennirnir.
(sjá t.d. vísu 1709)
Asklok fyrir himin höfðuhöfðingjar þessa landsaf þeim er Íslands sögu sögðusæmdir heiðurskrans.
Ísland drápu dróma úrdönsku ráðin klók:Páll við milding miður súrfékk manntal og jarðabók.
(ræsir: konungur)
Heimildir og samhengi
Harald Gustafsson: Mellan kung och allmoge, Stockholm 1985, bls. 32; ,,Kring 1700 hotades hela det isländska samhället av ekonmisk kollaps".
Um yfirstandandi hungursneyð, sjá 1700.
Í þjóðernisrómantískri söguritun fyrri hluta 20. aldar er sendifarar þess danska lögmanns, Lauritz Gottrup, til konungs 1701 varlega getið og tilefni hennar og ekki hverjir reyndu þá að koma í veg fyrir að Ísland legðist í eyði eins og lögrétta hafði ályktað að blasti við.
Til fararinnar rak verðhækkun á korni á sama tíma og Fitjaannáll segir: ,,Sumarið vætusamt, ónýttust hey, hlutir sunnan og vestan litlir, en fiskilaust fyrir norðan svo margt fólk dó af hungri... átu þó margir margs konar óæti og dóu þar af en rán og þjófnaður ósegjanlegur”.
Á 4. hundrað sjómenn höfðu farist veturinn 1699-1700. (Saga Íslendinga V, 435).
Fitjaannáll, 345: ,,Kongleg náð hafði og gefið 600 rd. þeim sem mannskaða og skipskaða liðu hér hið fyrra árið, helst eptirlifandi ekkjum og munaðarleysingjum, en hvernig því var útskipt, innfærist hér ekki". (Enda vissara, sbr. 1698, 1699, 1700).
Ekki er vitað til að þetta fé hafi farið lengra en til sýslumanna sem því skyldu dreifa til ekkna og munaðarleysingj.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurmiff.dk (opnast í nýjum flipa)
Vegna kólnandi veðurfars sem rannsóknir rekja m.a. til Heklugossins 1693 varð uppskerubrestur í Evrópu og hungursneyð með mannfalli og hvað verst í Skotlandi og Skandinavíu.
Í Englandi var þá komin fátækraaðstoð sem brást við auknu álagi, þ.e. þeir sem aðstoð veittu hirtu þar ekki sjálfir það sem fátækum var ætlað. Tilvísun: ,,Ástand Ísl. um 1700" bls. 74.
Á bls. 71-72 í ,,Ástand Ísl. um 1700" segir að Heklugosið 1693 ásamt gosum í Indónesíu hafi valdið síun á sólarljósi sem olli harðindunum sem uxu þá á Íslandi fram til um 1703, Sbr. hér við 1694, 1699 til 1701.
,,Vegna harðinda frá 1675 og fimmtán ára gæftaleysis var Ísland við það að leggjast í eyði” segir í Sögu Íslands VI, 11, sem er í samræmi við bænaskrá alþingis 1700 til kóngs um að lm. L. Gottrup megi ganga á fund hans sökum þess að nú ,,monne Landet inden kort Tid vorde öde". Ath., ritið Saga Íslands er útgefið 2003, þ.e., 17 árum eftir að Gfísli Gunnarsson byrjaði að segja sannleikann um það sem gerðist fyri 300 árum.
Ætlun Gottrups var að koma í veg fyrir boðaða verðhækkun erlendrar vöru, og fá skuldaniðurfellingu fyrir fátæka, en að fyrrnefndir 600 rd. kóngsins hafi ekki ratað til ekkna drukknaðra sjómanna má lesa út úr orðvörum annálnum, sem ritaður er á þeim tíma þegar það kostaði 100 svipuhögg eða útlegð að segja sannleikann um sýslumann (sbr. 1698, 1699).
Vallaannáll I, 444: ,,Þá kom með amtmanni svar skriflegt af konginum upp á supplicatiu þá, er hið fyrra sumar var á alþingi þess efnis, að hann tillætur, að annarhvor lögmanna megi útsigla til að ávísa landsins nauðsynjar. Það svar sendi amtmaður herra Láritsi ...og bað hann búast til framsiglingar ...Með amtmanni og herra Lárits lögmanni lagðist miður á, en ella mundi, þá er þeir fundust. Stóð það misþykki um alþing. Mátti þá heyra að amtmaður lét sér eigi svo geti verða að siglingu hans sem áður var hugað”.
Sinnaskipti am. Möllers hafa verið eignuð því að hann hafi orðið/verið hluthafi í Íslandsversluninni.
Að svo hafi verið telur Páll Eggert Ólason í Sögu Íslendinga V, 431, auk þess sem hann kveður hringlandahátt vera enkenni amtmannsins. (Alzheimer?).
Lúðvík Geirsson, Höfuðstaður verslunar (Hfj.), bls. 60: ,,Kristján Möller ...þótti ekki mikill bógur og höfðu kaupmenn syðra hann alveg í vasanum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í Víðidalstungu, í nágrenni við Lauritz Gottrup á Þingeyrum, bjó Páll Vídalín, sem vildi verða lögmaður og hafði því fyrstur orðið sér úti um titilinn varalögmaður. Hann var ekki sáttur við að maður af næsta bæ færi að tala við kónginn, en Gottrup var einmitt annar tveggja sitjandi lögmanna, sem voru honum framar í goggunarröðinni. Páli varð auðfengið liðsinni frænda síns, Jóns biskups Vídalín. Gottrup hafði nefnilega samið skýrslu um skólahaldið í Skálholti, sem biskupi líkaði ekki (sjá 1734) og nú neitaði hann ásamt öllum prestum sem alþingi sóttu að samþykkja för Lárusar.
Vlm. Páll Vídalín náði að fá fjóra sýslumenn til hins sama með þeim rökum að of dýrt væri.
Prófessor Árni Magnússon var skólabróðir Jóns Vídalíns frá Hafnarháskóla og þáði árið 1699 af honum 14 skinnhandrit sem þó voru eign Skálholtskirkju.
Gerði Árni sér nú það ómak að skrifa kóngi bréf í maí 1701 þar sem hann mótmælir för Gottrups með rökum þeirra Vídalína.
Íslandssaga Jónasar Jónssonar frá1916 ver tveimur línum í sendiför L. Gottrups án þess þó að nefna nafn hans. En þrenningin, Árni og Vídalínar, andstæðingar utanfarar hans til bjargar þjóðinni, fá 8 blaðsíðna jákvæða umfjöllun og taldir á bls. 56 í II. hl. ,,..hinir merkustu menn sem þá voru uppi með þjóðinni".
Um árangur af för LG - þjóðin lifði af - er fjallað við 1702.
(Tilvísun og heimild: Már Jónsson: Árni Magnússon ævisaga, bls. 168-169, 175, 180).
Gísli Gunnarsson, Ráðstefnurit II, Söguþingsins 1997, bls. 123 neðanmáls: ,, erindi hans (L. Gottrup) umrædd ár ár var að bæta stöðu Íslendinga gagnvart einokunarversluninni. ... Gottrúp tók ekki aðeins málstað Íslendinga gagnvart kaupmönnum heldur einnig málstað sveitabænda gagnvart sjávarbændum".
Gunnar Karlsson: Lífsbjörg Íslendinga, bls. 264 um íbúa Íslands á þjóðveldisöld: ,,Hér á landi hefur varla verið til neinn aðili sem hugsaði um hag samfélagsins sem slíks ...og varla svo meðvituð pólitísk þjóðernisstefna að hún leiddi einstaklinga út á braut slíkarar hugsunar".
Á bls. 24 í Ritsafni 3, Sverris Kristjánssonar, segir að orðið patriote - ættjarðarvinur - hafi fyrst komið fyrir í orðabók Frönsku akademíunnar 1777, þ.e.a.s., var ekki í útgáfunni 1694.
Vestræna Lúðvíks Kristjánssonar, 201: ,,...það var á mörkum að Ísland gæti talist byggilegt þegar verst gegndi um veðurfar og aflabrögð. Við ráðagerðir einar sat um fólksflutninga – 4-5 þúsund manns - héðan til Vestur-Indía enda jókst afli þegar að mun 1705 ...og hlýnaði veðurfar, en um fólksfækkunina sá Stórabóla” 1707).
Friðrik 4. fór þannig að tilmælum alþingis og lm. Gottrup að hann færði leyfisgjöld kaupmanna niður um 6000 rd. enda skyldu þeir selja kornvöru sama verði og áður þrátt fyrir erlenda verðhækkun. Allir sáttir? Páli og Árna varð því að hygla og fengu verkefni - manntal og jarðabók - sem hvorki hann né eftirmenn hans gerðu neitt með öldum saman, sjá 1702. Í ný útkominni ævisögu Jóns Vídalíns er ekki minnst á þetta mál.
Harald Gustafsson: Mellan kung och allmoge, Stockholm 1985, bls. 22:
,,Da kongen var tvungen til at benytte godsejerne i lokalforvaltningen, var han også på grund af styrets status sem enevælde nödsaget til at indgå kompromis med dem hvor de havde forskellige intersser at varetage".
Og HG vitnar á bls. 23 í Danmerkursögu O. Fældbæk frá 1982, sem á a.m.k. við Noreg: ,,Den enevældige monark sad for ringe autoritet ...til at stille krav, som ...stred mod regionale interesser og mod nedarvede rettigheder".
Sami, HG, segir frá því (Upplýsingin á Íslandi, bls. 45) að Jósep 2. Austurríkiskeisari gat ekki komið á nýrra og betra stjórnkerfi í Niðurlöndum vagna andstöðu forréttindastéttarinnar þar.
LÍFTAUG LANDSINS, I, 209, Gísli Gunnarsson: ,,1685 til 1700 var sennilega mesta kuldatímabil í sögu íslenskrar byggðar. Þá er sennilegt að Íslendingum hafi fækkað úr 60.000 í 50.000 eða um 17% ...Kóngur brást fyrst við eftir að áföllin voru gengin yfir". Hvers vegna sést hér að framan.
LÍFTAUG LANDSINS, I, 2010, Gísli Gunnarsson: ,,Ég taldi að ekki aðeins Danir heldur líka höfðingjaveldi alíslenskt og almenn íhaldssemi fátæks fólks væri skýring á margbreytilegu viðbragðsleysi (m.a. við hörmungum þessara aldamóta). ...sumir hneyksluðust. Þvílíkt og annað eins, að kenna Íslendingum sjálfum um eymdina og oft meira að segja merkum Íslendingum".
Söguskoðun 1984:
Gísli Gunnarsson í ritgerð um Móðuharðindin, M&M 1984, bls. 238: ,,Ekki hefur borið mikið á umræðu um það hve rækilega fátækt fólk var fyrirlitið í gamla íslenska sveitasamfélaginu, en þessi fyrirlitning hindraði tvímælalaust varnaraðgerðir gegn hungurdauða. Það viðhorf var engan veginn óþekkt, að fátæklingar væru best geymdir dauðir". (Í tilvísun er Skúli fógeti undantekinn).
Séra Ágúst Sigurðsson, Forn frægðarsetur, lV, bls. 189 fjallar um þetta ginnungagap á milli stéttanna: aðals / embættismanna, presta, jarðeigenda og leiguliða, og segir að leiguliðar og snauðir prestar hafi ekki verið til kallaðir þegar yfirstéttin fjallaði um mál þeirra. Tilvist fátækra skipti engu svo lengi sem þeir stóðu í skilum: ,,Tilvera þessa ógæfusama leigufólks eignavaldsins í landinu, var hljóðlaus í samfélaginu og næstum algleymd í sögunni".
Því trúðu sýslumenn ekki að kóngi væri alvara þegar hann fór fram á að þeir ómökuðu sig með því að skila 600 rd. frá honum, sjálfum kónginum, til þeirra verst settu eftir náttúruhamfarirnar þessi aldamót.
Hér má lesa um hungursneyð á 10. öld:
Vefursnerpa.is (opnast í nýjum flipa)
Spillt dómskerfi:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sagnfræðingar um aldamótaharðindin 1700:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)