Asklok fyrir himin höfðu
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Asklok fyrir himin höfðuhöfðingjar þessa landsaf þeim er Íslands sögu sögðusæmdir heiðurskrans.
Ísland drápu dróma úrdönsku ráðin klók:Páll við milding miður súrfékk manntal og jarðabók.
Heimildir og samhengi
Axel Kristinsson, Hnignun, bls. 56: ,,Pólitískar einingar þurfa sínar goðsagnir”.
Íslandssaga Jónasar Jónssonar 1916: ,,Snorri veginn fyrir að vilja vernda frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar".
Tilvísun: Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 206.
Benedikt Gíslason frá Hofteigi, Fólk og saga, 1958, bls. 16: ,,..sögu þeirra manna sem ekki fá ,,gott orð" á þessum tíma þarf að endurskoða, því það er ljóst mál, að þeir sem fá gott orð berast með straumi kúgunar og valdbeitingar einræðiskonunga og spilltra valdstjórnarherra". Sjá 1701.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sbr. fyrri ár er vandamálið erlendar verðhækkanir af völdum kólnandi veðurfars og verðbólgu í evrópu sem áttu að koma út í verðlag á Íslandi.
Að frumkvæði Danans, Lárusar Gottrup, gerði kóngur ráðstafanir sem dugðu. Afstaða Páls og Jóns Vídalína og Árna Magnússonar sést hér að framan, 1701. Sjá skýringu á íslenskum verðlagsmálum við 1619.
Fitjaannáll: ,,...kongl. náð og mildi gaf Íslandsreiðurunum upp í 4 eftirfylgjandi ár 6000 rd. af hafnartollum og skyldi aptur taxtinn niður stíga”.
Eyrarannáll III, 413: ,,Kom út...hann (Gottrup) færði með sér nýjan taxta ...í hverjum mjöl, járn, snæri og norskt timbur var minna taxterað en í þeim sem áður var”.
Friðrik IV. kunni að deila og drottna. Þegar hann kom landinu til bjargar hyglaði hann Páli Vídalín og Árna Magnússyni bitlingi sem lítið eða ekkert var gert með í 212 ár. Manntalið 1703 fannst 1914 eftir leit í geymslu í Ríkisskjalasafni Dana. 1924 byrjaði Hagstofan að gefa það út og lauk 1947.
Jarðabókarhandritin lét Árni ekki frá sér meðan lifði, en Björn Markússon (1716-1791), lm. lfrá 1757 til dd., vann við það tveimur kóngum síðar, 1747, að afskrifa jarðabókina, hún þá þýdd á dönsku, en gefin Þjóðskjalasafni Íslands 1928. (P. E. Ól., Saga Íslendinga VI, 70-71 og Agnar Kl. Jónsson, Lögfræðingatal, bls. 134).
,,Jarðabókin var gefin út af Hinu íslenska fræðafélagi í Kaupmannahöfn í 11 bindum 1913-1943". (Einar Laxness Íslands saga II, 24).
Manntalið og jarðabókin sprottin af húnvetnskri hreppapólitík (?) Sjá 1701.
Elsta varðveitta heildarmat jarðeigna er frá 1681, kennt við Johan Kleis, fógeta höfuðsmanns, og umfangsminni jarðabækur voru í gerð 1686 og 1695-1698 í sambandi við svonefnda stríðshjálp og má kóngur hafa haft eitthvað slíkt í huga – hafi hann þá haft nokkuð í huga - annað en að friða Pál og Árna. (Tilvísun: Einar Laxness Íslands saga II, 139).
Sjá: Lýður Björnsson, Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu, bls. 128.
1704 vildu kaupmenn fallast á tillögur L. Gottrup um afnám svæðaverslunar ef niðurfelling gjalda héldist, en það hafði verið tillaga L. Gottrups 1701. Árni og Páll voru beðnir umsagnar. Árni sigldi utan til að koma í veg fyrir það og hafði sitt fram og tvöfölduðust þá tekjur konungs af Íslandsverslun og vegur Árna hækkaði hjá kóngi.
Már Jónsson, í ævisögu Árna, bls. 249: ,,Þó er aldrei að vita nema óvild í garð Gottrups hafi ráðið nokkru".
Gísli Gunnarsson heldur að kóngur hafi þarna hirt allan gróðann af versluninni en kaupmenn slyppir. (bls. 119 í Ráðstefnuriti ll frá Ísl. söguþinginu 1997).
Þegar Jón Aðils nafngreinir ekki ,,hina merkustu menn sem uppi voru með þjóðinni" í sögu Odds Sigurðssonar, bls. 23, er hann ómyrkur í máli um þjóðhollustu þeirra í þessum kaupsetningarmálum: ,,...svo voru sumir af landsmönnum eigingjarnir að þeir létu vináttu amtmanns og fagurmæli ríða baggamuninn og skárust úr leik þótt hér væri um velferð landsins að tefla”.
Í prédikun 5. sd. í föstu 2022 fjallaði sr. Skúli Ólafsson um þá sem hafa helgað líf sitt því að öðlast völd yfir öðru fólki:
,,Góður leiðtogi lætur stjórnast af hugsjón sem er stærri en svo að hann láti eigingirnd sína þvælast fyrir sér á þeirri leið sem hann hefur lagt upp í. Fyrir honum er það mikilvægast að samfélagið sem hann leiðir áfram fái dafnað og fólkið vaxi upp til aukins þroska".
Niðurstaða Páls Eggerts Ólasonar er: ,,Það má kalla ólán Íslendinga, hve fyrirmenn þeirra komu sér illa saman og hindruðu tillögur sem fram komu til umbóta". (Saga Íslands VI, 19).
Í bók Máls og menningar: Íslandssagan í máli og myndum, bls. 144, er Árni Magnússon kallaður framfarasinnaður föðurlandsvinur.
Íslandssaga Jónasar Jónssonar 1916: ,,Snorri veginn fyrir að vilja vernda frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar".
Friðrik IV. má hafa þekkt viðkvæði Kyrosar mikla, Persakonungs: ,,Með valdi má ná undir sig svæðum, en til þess að halda þeim þarf góða stjórn”. (Der Spiegel, Geschichte 3/2018 bls. 68).
Gunnar Karlsson, Lífsbjörg Íslendinga, bls. 264 um íbúa Íslands á þjóðveldisöld: ,,Hér á landi hefur varla verið til neinn aðili sem hugsaði um hag samfélagsins sem slíks ...og varla svo meðvituð pólitísk þjóðernisstefna að hún leiddi einstaklinga út á braut slíkrar hugsunar".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
LÍFTAUG LANDSINS, I, 2010, Gísli Gunnarsson: ,,Ég taldi að ekki aðeins Danir heldur líka höfðingjaveldi alíslenskt og almenn íhaldssemi fátæks fólks væri skýring á margbreytilegu viðbragðsleysi (m.a. við hörmungum þessara aldamóta). ...sumir hneyksluðust. Þvílíkt og annað eins, að kenna Íslendingum sjálfum um eymdina og oft meira að segja merkum Íslendingum".