Árið 1887

t.d.

4 vísur frá árinu 1887
  1. 1887Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Hart nú þjarmar Þingið að

    þéttbýlis lausamönnum
    þeim sem ekki standa í stað
    stefnum, sektum, bönnum.

    Breyttir tímar í evrópu, en ekki enn hér: Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 15, upplýsir að hagvaxtarskeið hafi byrjað á Íslandi um 1890 eftir að tekin var upp fríverslunarstefna í evrópu.…

    Hlusta
    AlþingishúsiðSigurður Stefánsson, alþm. VigurVigur+3
  2. 1887Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Þrenging, mæðu' og þyngsli jók

    þeim sem eftir tóra
    Húnaflói er til sín tók
    tuttugu og fjóra.

    Fimm skip frá Skagaströnd fórust í ofsastormi og með þeim 24 menn. Árni Óla, Aldaskil, bls. 206: sögn Guðrúnar Benónýsdóttur, f. 8. nóv. 1872 á Skagaströnd. Úrdráttur: Sjö bátar reru þá um morguninn 3. janúar og voru á…

    Hlusta
    HúnaflóiSkagaströnd
  3. 1887Lag: Snemma lóan litla í

    Bjarna- fyllti bátinn mar

    en Bakka, hans og Stokkseyrar
    líf fyrir sjónum svífur:
    á orgel lék öll ættin þar
    eins og sáði upp hún skar
    ennþá virða hrífur.

    Bjarni Pálsson f. 18.06. 1857 í Syðraseli, Stokkseyrarhreppi, og bátsverjar fórust í brimlendingu við Þorlákshöfn á báti Bjarna 24.02. 1887. Höfðu snúið við frá Eyrarbakka og gengið á kraftana við að berja vestur í…

    Hlusta
    Bjarni Pálsson, organisti StokkseyriÞorlákshöfnStokkseyri+5
  4. 1887

    Í karlaveldi kemur brestur

    klyfjar þyngjast sonum
    Bríet flytur fyrirlestur
    um fríheit handa konum.

    ,,Í lok desember 1887 hélt Bríet Bjarnhéðinsdóttir opinberan fyrirlestur í Reykjavík fyrir fullu húsi, fyrst kvenna. Engin skipulögð hreyfing var að baki, hún tókst á við baráttuna ein á báti. Eitt kvenfélag hafði…