Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1887
1887
1887

Þrenging, mæðu' og þyngsli jók

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

ÞÞrenging, mæðu' og þyngsli jókþeim sem eftir tóraHúnaflói er til sín tóktuttugu og fjóra.

Glúmur Gylfason · 1887

Heimildir og samhengi

Fimm skip frá Skagaströnd fórust í ofsastormi og með þeim 24 menn.

Árni Óla, Aldaskil, bls. 206: sögn Guðrúnar Benónýsdóttur, f. 8. nóv. 1872 á Skagaströnd.
Úrdráttur: Sjö bátar reru þá um morguninn 3. janúar og voru á þeim flestir verkfærir karlmenn úr byggðarlaginu. Miðin sem þeir ætluðu að sækja á voru út af Vatnsnesi. Róið var í myrkri um nóttina og sá því ekki til lofts, en veður var sæmilegt. Kl. 11 um morguninn var komið ofsarok á norðaustan. Tveir bátar, sem styst voru komnir, sneru þá aftur. Björguðust allir. Um hina bátana veit enginn neitt nema þeir fórust allir. Stórhríð þessi stóð látlaust í þrjá sólarhringa. Við þetta urðu 9 mæður ekkjur og 27 börn föðurlaus. Vindhælishreppur rétti ekki við um áratugi eftir þetta því að hann missti eigi aðeins hinna duglegustu manna heldur og marga afkomendur þeirra á sveitina.
Árni Óla segir á bls. 208, að sumarið áður,1886, hafi á þessum slóðum verið kalt og óþurrkasamt, hey því lítil, óholl og skemmd svo víða varð að skera niður. Í apríl (1887) voru hey uppi (þrotin) en þá gerði stórkostlegt hret um sumarmálin. Varð þá fénaður að standa í svelti í húsunum. Í hreti á uppstigningardag fennti sauðfé og jafnvel hesta og hrakti til dauðs í vötn og ár en landfastur hafís stóð fram á sumar og komst vestur á móts við Kúðafljót seint í ágúst.

Ágúst Jónsson frá Hofi (Vatnsdal) leysir frá skjóðunni, bls. 10: ,,Skaðaárið mikla, 1887, ...brast foráttustórhríð á 17. maí. ...Talið er að um 20 þúsund fjár hafi farist í þessu veðri í Skagafirði og Húnavatnssýslum".

Þetta ár fluttust 2000 héðan af landi til Ameríku.
Það sést af eftirfarandi skjali, að á meðan fólk flýr land og hungur og harðindi marka menn, og dýr falla úr hor, snerist hugur Alþingis um það eitt að endurskoða stjórnarskrána frá 1874:
SkjalAlþingi (opnast í nýjum flipa)

Sjá enn fremur: Magnús Björnsson frá Syðra-Hóli: Svipir og sagnir, útg. Sögufél. Húnvetninga 1948, bls. 126;
Jónas Ragnarsson: Dagar Íslands
.

Þennan fyrstnefnda mánaðardag, 3. janúar, hefur loftþrýstingur mælst bæði hæstur í Reykjavík, 1841, og lægstur, 1933, og á sama sólarhring, 2. janúar 1653, varð Háeyrarflóðið, þ.e. við Eyarbakka, sem segir að þá hefur loftþrýstingur verið með afbrigðum lágur enda náði flóðið allt til Breiðafjarðar.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1887

  • Hart nú þjarmar Þingið að
  • Bjarna- fyllti bátinn mar
  • Í karlaveldi kemur brestur
← 1887Hart nú þjarmar Þingið að1887 →Bjarna- fyllti bátinn mar