Árið 1788

t.d.

2 vísur frá árinu 1788
  1. 1788Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Etur skáld það úti frýs,

    öllu dirfist voga:
    missir prest og Paradís,
    próförk les hjá Boga.
    Hempan laus á herðum er
    hefur tvisvar fallið
    einstæðingur aleinn fer
    Öxnadals í kallið.
    1 erindi til viðbótar

    1773 kom til Hrappseyjar prentsmiðja Boga Benediktssonar (1723-1803). Prófarkalesari varð þjóðskáldið séra Jón Þorláksson (1748-1819), sjá 1748, enda sviptur kalli fyrir tvær barneignir með konu af ríkri ætt, sem hann…

    Hlusta
    Ytri-BægisáGaukurGaltardalur
  2. 1788Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Dóra Kobba flest var fært

    uns fóru skip að stranda
    aftur var svo enn þá kært
    og illa þótti standa.
    Kraftarnir hans leiðarljós
    því lögmál styrkra handa
    að Búðum löngum lært til sjós
    að leysi sérhvern vanda.

    Ísl. æviskrár: ,,Halldór Jakobsson (1735-1810) sýslumaður (Dóri Kobba). Foreldrar: Jakob Eiríksson að Búðum og kona hans, Guðrún Jónsdóttir prests á Staðastað Jónssonar.... Lauk embættisprófi 1756 með 1. einkunn, var…

    Hlusta
    Að BúðumStrandasýsla