Árið 1789

t.d.

4 vísur frá árinu 1789
  1. 1789Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Á barna sinna feigðarferð

    fógetinn gamli horfði:
    ,,Goldið hef eg nú Viðeyjarverð”
    varð honum þá að orði.

    Létust með fárra daga bili: 10. mars lfr. Jón Skúlason varafógeti, f. 1736, Magnússonar landfógeta, og 19. mars drukknaði á Viðeyjarsundi Jón, einkasonur varafógetans, Jóns heitins.

    Hlusta
    ViðeyjarsundSkúli Magnússon, fógeti
  2. 1789Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Prófastaættin breyttist brátt

    í biskups öflugt veldi
    foldu neðar Finnur þrátt
    fleira keypti en seldi.

    + Finur Jónsson Skálholtsbiskup, f. 1704. Var við manntal 1729 orðinn einn af ríkustu mönnum landsins. Hann var sonarsonur Hólmfríðar prófastamóður, sjá 1664. Erfingjar hans, með fullar hendur fjár, þóttu jafnvel ganga…

    Hlusta
    Finnur Jónsson biskup Skh.Legsteinn á gröf Hannesar Finnssonar, biskups
  3. 1789Lag: Heimsins þegar hjaðnar rós - Bj.Þ. 914

    Firðum þykir fáum betra

    en flestum miður
    er Þingvellir sextíu sentímetra
    sigu niður.

    https://www.thingvellir.is/fraedsla/nattura/flekahreyfingar/ https://www.youtube.com/watch?v=CVwusgc-Dns

    Hlusta
    https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/f/f6/Al%C3%BEingi_L%C3%B6gberg_aerial_panorama.jpg
  4. 1789Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Bastillan af blóði rauð

    bardagar og kjökur
    allt í París búið brauð
    bakkelsi og kökur.

    Mbl. 2. nóv. 2008: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1252965/ ,,Af hverju borða þau ekki bara kökur?“ eru fræg ummæli eignuð Marie Antoinette, drottningu Loðvíks XVI. Frakkakonungs þegar banhungraður almenningur bað…

    Hlusta
    Marie AntoinetteBastillutorgið - B. var jöfnuð við jörðuBastillunni rústað+1