Árið 1787

t.d.

5 vísur frá árinu 1787
  1. 1787Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Óæðri skulu bognir bera

    byrði lífs með sút
    ,,börn og unglingar eiga að vera
    auðmjúk og niðurlút".

    Húsagatilskiðunin 1746 er enn í lögum og gildir til 1886. Elín Ólafsdóttir, Sólveiga saga, bls. 15: ,,...börn og unglingar eiga að vera auðmjúk og niðurlút". Bókin er söguleg skáldsaga og tjáir tilvitnuð setning hver sé…

    Hlusta
  2. 1787Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Versli þengils þjónar jafnt

    það af honum boðið
    en leyfir ekki lögrétta samt
    lýðnum að veiða í soðið.

    Lauk konungsverslun síðari og verslun þá heimil öllum þegnum Danakonungs 1. janúar 1788. Ekki þótti meira frelsi ráðlegt þá af ótta við vöruskort og voru aðspurðir Íslendingar á þeirri skoðun, t.d. Jón Eiríksson. Sm.…

    Hlusta
    Neðstikaupstaður, Ísafirði (Skutulsfjarðareyri)
  3. 1787

    Harmlostin kona á heitingar brá

    og hengdi sig eftir það
    hinn skildi kroppnum höfuðið frá
    og hagræddi á leyndum stað.

    Úr Djáknaannálum VI, bls. 294: ,,Um haustið hengdi sig kvenmaður á Suðurnesjum og hafði heitingar við annan mann, en hann af hræðslu tók af henni höfuðið áður en hún var dysjuð. Var hún svo eftir skipun stiptamtmanns og…

    Hlusta
  4. 1787

    Af íslenskum fékk alveg nóg

    og ei umborið galla
    uns lögfræðingur af Langebro
    lét sig niður falla.

    + Jón Eiríksson (31. ágúst 1728 – 29. mars 1787), lögfræðingur og konferensráð í Kaupmannahöfn, sem Ludvig Harboe flutti með sér til Danmerkur 1745 og kostaði til náms. Á bls. 49 í ævisögu Jóns Eiríkssonar eftir Svein…

  5. 1787Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Illugi ei brúkaði önnur tól

    en öxi sína og nafar
    Skálholts- þénaði stað og stól
    stefnir nú til grafar.

    Illugi Staðarsmiður, þ.e., Skálholts, fæddur 1725, að Neðra-Dal í Biskupstungum, bóndi og hreppstjóri á Drumboddsstöðum í um 30 ár, dáinn 1787 í Grindavík, við skipasmíði að sögn Brynjólfs Jónssonar frá Minna-Núpi, og…

    Hlusta
    MjólkurtrogTeinæringurAltari, smíði Illuga Jónssonar