Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1787
1787
1787

Versli þengils þjónar jafnt

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

VVersli þengils þjónar jafntþað af honum boðiðen leyfir ekki lögrétta samtlýðnum að veiða í soðið.

Glúmur Gylfason · 1787

Heimildir og samhengi

Lauk konungsverslun síðari og verslun þá heimil öllum þegnum Danakonungs 1. janúar 1788. Ekki þótti meira frelsi ráðlegt þá af ótta við vöruskort og voru aðspurðir Íslendingar á þeirri skoðun, t.d. Jón Eiríksson.
Sm. Magnús Ketilsson, Búðardal, Skarðsströnd, segir í riti sínu, Stiftamtmenn og amtmenn, bls. 60: ,,fríhöndlun ...er(u) að nokkru eða að öllu leyti á móti landsins náttúrulegu ásigkomulagi".

Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 63: ,,Svo mótsagnakennt sem það virðist, þá versnaði verslunin mikið við það (frelsið). Konungur hætti að veita fé til landsins með þeim rökum, að landsmenn hefðu fengið frjálsa verslun og þyrftu ekki á frekari hjálp að halda".

Verslunarfrelsi komst á í Prússlandi 1810, en verslunarfrelsi orðið ráðandi í evrópu um 1890.
Verslunarfrelsi tók gildi í Leipzig 1862 og 1869 í Norður-Þýskalandi (Norddeutschen Bund), skv. Der Spiegel, Geschichte, 4/2018, bls. 89.

Vigfús Guðmundsson, Saga Eyrarbakka II, 507: ,,...var tekið að selja verslanir konungs. Urðu danskir menn til að ganga í kaupin ...Síður var en svo að batnaði verslunin á Eyrarbakka.
Með komu Guðmundar Thorgrímsen breyttist aftur nokkuð til bóta (1847) og helst eftir að Lefolii eldri var einn orðinn eigandi eftir 1868”.

Hafa má í huga að frjáls verslun leyfðist ekki t.d. með þýskum fyrr en ~1770.

Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 19: ,,Það sjónarmið, að lögbýlið væri eini eðlilegi vettvangurinn fyrir atvinnurekstur Íslendinga, hafði m.a. í för með sér þá almennu reglu, að enginn fékk að eiga eða reka bát nema hann ætti eða leigði jarðnæði á vegum lögbýlis".
Allt frá Grágás, sama orðalag. Í Jónsbók (1281), var öllum frjáls veiði fyrir utan ,,netalög” lögbýlis, sem í túlkun löggjafans 1990 var 115 m út frá stórstraumsfjöruborði landareignar. Fyrrnefnd ,,almenna regla” studdist því ekki við nein lög segir Sigurður Líndal, Vestanglæður 2004, bls. 175.

Sr. Sigurjón Einarsson, Undir hamrastáli:
,,Vildi t.d. bátseigandi í Arnarfirði kaupa sér upsátur nærri miðunum, þ.e. frá landi Selárdals, þá galt hann prestinum þar fjórða hvern málfisk fyrir aðstöðuna".

Myndir

Einnig frá árinu 1787

  • Óæðri skulu bognir bera
  • Harmlostin kona á heitingar brá
  • Af íslenskum fékk alveg nóg
  • Illugi ei brúkaði önnur tól
← 1787Óæðri skulu bognir bera1787 →Harmlostin kona á heitingar brá