Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1787
1787
1787

Illugi ei brúkaði önnur tól

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

IIllugi ei brúkaði önnur tólen öxi sína og nafarSkálholts- þénaði stað og stólstefnir nú til grafar.

Glúmur Gylfason · 1787

Heimildir og samhengi

Illugi Staðarsmiður, þ.e., Skálholts, fæddur 1725, að Neðra-Dal í Biskupstungum, bóndi og hreppstjóri á Drumboddsstöðum í um 30 ár, dáinn 1787 í Grindavík, við skipasmíði að sögn Brynjólfs Jónssonar frá Minna-Núpi, og þá væntanlega fyrir Skálholtsstól .

Skúli Helgason, Þættir úr Árnesþingi, bls.143: ,,...nafnkunnur um mikinn hluta Suðurlands ...fyrir hagleiksgáfur og hugvit er laut að öllum smíðum ... var staðarsmiður Skálholts árum saman og allt til æviloka".

Illugi smíðaði meðal annars 18 stórskip og 26 sexróin og minni, 10 kirkjur og 80 líkkistur hvar af hann gaf fátæklingum 40.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
,,...hann var manna hagastur á járn, en þó einkum á tré. Hann brúkaði aldrei hefil, en felldi allt saman með smíðaöxi sinni.

Einu sinni var hann nótt á bæ, og þar var þá líka lærður snikkari. Þeir voru beðnir að smíða mjólkurtrog um kvöldið um vökuna. Illugi hafði engin tól nema öxi sína og nafar. Snikkarinn hafði öll sín tól, sem siður er að brúka. Þeir kepptust, og var snikkarinn litlu fyrri. Síðan var vatni hellt í trogin og lak trog snikkarans, en Illuga trog hélt" - bls. 145.

,,Árið 1787 var hann sæmdur silfurpeningi Landsstjórnarfélagsins danska í heiðursskyni og veitt 10 ríkisdala verðlaun fyrir framúrskarandi dugnað og iðni".

Þáttum sínum úr Árnesþingi lýkur Skúli Helgason á að segja hagleiksgáfu gætt hafa hjá mörgum afkomendum Illuga í Árnesþingi.
Þar má nefna að víðkunnir um Suðurland voru í þeirri grein byggingameistararnir Kristinn Vigfússon (1893-1982) og Guðmundur Sveinsson (1923-2011) báðir á Selfossi og enn þá erfist lagtækni Illuga til núlifandi ættmenna.
(Mynd af Kristni er við 1918).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefursnerpa.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1787

  • Óæðri skulu bognir bera
  • Versli þengils þjónar jafnt
  • Harmlostin kona á heitingar brá
  • Af íslenskum fékk alveg nóg
← 1787Af íslenskum fékk alveg nóg1788 →Etur skáld það úti frýs,