Vínnautn Gísla rektors rík
réð þó stjórnin líða' h'ann
graut ef fékk þar busi' á brík
byrja' á mátti' að þíða' h'ann.
Oddur Gísla liðið lík
lengi fannst ei síðan.
Kaupstaður þá varð hún Vík
og verið hefur síðan.
Skólahald lagðist niður í Skálholti eftir jarðskjálftann 1784. Þetta ár byrjar Reykjavíkurskóli hinn fyrri á Hólavelli í húsi sem var dýrt en kalt. Bæði átti byggingarefni það til að hverfa um nætur meðan á smíði stóð…