Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1788
1788
1788

Dóra Kobba flest var fært

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

DDóra Kobba flest var færtuns fóru skip að strandaaftur var svo enn þá kærtog illa þótti standa.Kraftarnir hans leiðarljósþví lögmál styrkra handaað Búðum löngum lært til sjósað leysi sérhvern vanda.

Glúmur Gylfason · 1788

Heimildir og samhengi

Ísl. æviskrár: ,,Halldór Jakobsson (1735-1810) sýslumaður (Dóri Kobba).
Foreldrar: Jakob Eiríksson að Búðum og kona hans, Guðrún Jónsdóttir prests á Staðastað Jónssonar.... Lauk embættisprófi 1756 með 1. einkunn, var sama vor rækur frá Háskólanum ...vegna misþyrmingar á jóskum stúdent í ölæði. ...veitt Strandasýsla 1758 ....vikið frá embætti 1788 ...og kom til af ólöglegri meðferð skipstrands; hafði hann og löngum átt brösótt þar í sýslu og verið vikið frá af amtmanni 1764-5 ...en stundum hlaut hann sektir fyrir embættisrekstur sinn eða ummæli um aðra. ... Hann var hár maður vexti og karlmannlegur sem þeir Búðamenn, frændur hans, en talinn ekki góðmannlegur enda maður mjög ofsafenginn og drykkfelldur. Hann var fróður um margt og ekki illa að sér þegar gætti þess".
Kvæntur var Halldór Ástríði Bjarnadóttur, sýslumanns á Þingeyrum Halldórssonar, sjá 1737, og konu hans, Þorbjargar dóttur lm. Páls Vídalíns.
Íslenskar æviskrár: ,,Var hjónaband þeirra Halldórs mjög stirt og fór hún alfarið frá honun 1796".
Þau sm. Halldór átti eina dóttur, sem dó barnlaus.
Jakobi föður hans var vikið úr Skálholtsskóla fyrir ofbeldi skólaárið 1729/30, en varð stúdent. Hann gerði út marga báta frá Búðum. (1725, 1790).

XII. bindi Íslendingasagnaútgáfunnar, 1947 (Guðni Jónsson), bls.XIII, segir að Halldór Jakobsson sé almennt talinn höfundur Ármannssögu hinnar yngri.

Vefurda-dk.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1788

  • Etur skáld það úti frýs,
← 1788Etur skáld það úti frýs,1789 →Á barna sinna feigðarferð