Árið 1744

t.d.

3 vísur frá árinu 1744
  1. 1744Lag: Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858

    Harboe farinn af Hólastól

    hvar ei réði terra
    hvergi sagðist, heims um ból,
    hafa séð það verra.

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, 620: ,,Segir Harboe að Steinn biskup hafi gert staðinn (Hóla) að umrenningabæli og sjúkrahúsi. Þá var skólinn í mestu vanhirðu. ...Hann byrjaði í nóvember og endaði…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819Ludvig Harboe biskup
  2. 1744

    Harboe fékk við Hjörleif rætt

    og hann var enginn kálfur
    engu við hans vit varð bætt
    og vissi það best sjálfur.
    1 erindi til viðbótar

    Jón Árnason Skálholtsbiskup lést 1743. 1744 hélt Harboe til Valþjófsstaðar í Skálholtsstifti og boðaði til sín presta. https://mats.photoshelter.com/image/I0000jY2sC1D.zfc Séra Ágúst Sigurðsson (1938-2010) ritar um komu…

  3. 1744Lag: Blessuð sólin elskar allt

    Afarmenni að burðum Björn

    á Burstafelli austur
    til aldurs komust ellefu börn
    til æviloka hraustur.

    Lést Björn Pétursson (~1661-1744) sýslumaður, Burstafelli í Hofsárdal í Vopnafirði. Íslenskar æviskrár: ,,Hann var afarmenni að burðum og hafði eftir því skaplyndi og vöxt, talinn bjargvættur sakamönnum, hérðasríkur…

    Hlusta
    Burstafell