Harboe fékk við Hjörleif rætt
Harboe fékk við Hjörleif rættog hann var enginn kálfurengu við hans vit varð bættog vissi það best sjálfur.
Á Ponta kunni og patínuprestur á ValþjófsstaðHallgrím út lagði' á latínulétt fór hann með það.
Heimildir og samhengi
Jón Árnason Skálholtsbiskup lést 1743.
1744 hélt Harboe til Valþjófsstaðar í Skálholtsstifti og boðaði til sín presta.
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)
Séra Ágúst Sigurðsson (1938-2010) ritar um komu hans þangað til séra Hjörleifs Þórðarsonar (1695-1786), sem sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín telur eitt helsta skáld 18. aldar (bls. 637 í Sögur Biskupsstólanna).
Erindin um sr. Hjörleif styðjast við Ísl. æviskrár og frásögn séra Ágústar á bls. 39 í II. bindi Fornra frægðarsetra: ,,Harboe lýkur lofsorði á vitsmuni hans, en telur hann sínkan ...álítur hann einnig upp með sér ...hér fann Harboe fyrir prest sem var leikinn í latínu og gat borið höfuðið hátt og komið fram af fullri djörfung", hafði og snúið Passíusálmum Hallgríms Péturssonar á latínu.
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
Það gerði síðar séra Kolbeinn Þorsteinsson í Miðdal (1731-1783) í bundnu máli.
Fermingarkverið ,,Ponti" - kennt við höfundinn, Erik Pontoppidan Sjálandsbiskup.
Patína: Diskur undir altarisbrauð – oblátur.
Séra Hjörleifur tók við Valþjófsstað 1743 af presti sem ekki treysti sér til að endurbyggja fornu kirkjuna sem í frumgerð var frá því um 1180. Mun hafa verið útbrotahús, þrískipa, með tveggja stafgólfa kór og endurgerð a.m.k. um 1383, (Vilkinsmáldagi).
Hurðin, Valþjófsstaðahurðin, var fyrir kirkju a.m.k. frá 1641, en má áður hafa verið fyrir skála miklum sem þar er getið.
Hjörleifur kann einmitt að hafa staðið í kirkjubyggingunni þegar Harboe bar að garði. Hann notaði gömlu viðina, og gerði af minni kirkju sem stóð til 1848.
Má vera að Hjörleifur hafi minnkað hurðina um þriðjung, þ.e., í þá stærð sem hún nú sést í á Þjóðminjasafninu, og er mesti dýrgripur safnsins.
1851 fór hurðin til Danmerkur, en gefin hingað aftur 1930. Mikla rannsókn á sögu kirkju og hurðar gerði Magnús Már Lárusson og niðurstöðuna má lesa á:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Þar er m.a. eftirfarandi frásögn úr Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar: ,,Á síðari hluta 12. aldar kom stórbóndinn Markús Gíslason (veginn 1196) af hafi með við í kirkju sem hann ætlaði að reisa heima á bújörð sinni, Saurbæ á Rauðasandi vestra. En skip hans lenti í Gautavík austur í Berufirði, og gaf hann kirkjuviðinn Sigmundi Ormssyni (d. 1198) á Valþjófsstöðum fremur en að reyna að flytja hann vestur".
Sonarsonur Sigmundar Ormssonar var Brandur Jónsson, ábóti og Hólabiskup, d. 1264.