Harboe farinn af Hólastól
Lag Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858
Harboe farinn af Hólastólhvar ei réði terrahvergi sagðist, heims um ból,hafa séð það verra.
Heimildir og samhengi
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, 620: ,,Segir Harboe að Steinn biskup hafi gert staðinn (Hóla) að umrenningabæli og sjúkrahúsi. Þá var skólinn í mestu vanhirðu. ...Hann byrjaði í nóvember og endaði í apríl með mörgum mislöngum fríum á milli. Kennsla hafi staðið mest í 4 mánuði. Engin skólareglugerð væri til, skólameistari ekki mjög starfi sínu vaxinn og heyrarinn, konrektor, mesti óróaseggur. Kennslugögn væru bágborin og sundurleit. Nemendur lægju mestan hluta árs í leti og ómennsku og haldi því áfram eftir útskrift. ...Þá var Harboe látinn dúsa í mjög gisinni kompu í prenthúsinu sem var sex fet á breidd og svipuð á lengd. Maturinn var ógeðslegur að hans mati og stofur lélegri en hjá fátækasta bónda ...og fletin væru eins og í tugthúsum ytra".
Sjá og bls. 647 í Sögu stólanna.
terra: slæpast.