Árið 1730

t.d.

2 vísur frá árinu 1730
  1. 1730Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Klukkan Friðriki fjórða glymur

    hans foráð býsna klók.
    Uppi, að Pétri, Árni fimur
    afritar Lífsins-bók

    Létust prófessor Árni Magnússon handrita- og bókasafnari og kóngur Friðrik IV. sem fjallað er um á árinu 1702 í sambandi við nýja verðskráningu, sem varð hagstæð Íslendingum fyrir málafylgju Danans, lm. Lárusar Gottrup…

    Hlusta
    Friðrik IV.Prófessor Árni Magnússon St. Pétur með lífsins bók+2
  2. 1730Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Þórður, er almannarómur rymur,

    renna má niður brók
    Reykjadalsprestsins leyndarlimur
    lögrétturannsókn tók.

    Vegna þess orðróms, að séra Þórður Jónsson (1698-1776) í Reykjadal hefði látið umskerast að hætti Gyðinga, skoðar fjögurra manna nefnd leyndarlim hans í lokuðu tjaldi á Þingvöllum. Einn þeirra var Jón Hjaltdalín sm.…

    Hlusta
    ÞingvellirUmskurn+1