Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1730
1730
1730

Þórður, er almannarómur rymur,

Hljóðbrot0:00

Lag Einn var að smíða ausutetur

ÞÞórður, er almannarómur rymur,renna má niður brókReykjadalsprestsins leyndarlimurlögrétturannsókn tók.

Glúmur Gylfason · 1730

Heimildir og samhengi

Vegna þess orðróms, að séra Þórður Jónsson (1698-1776) í Reykjadal hefði látið umskerast að hætti Gyðinga, skoðar fjögurra manna nefnd leyndarlim hans í lokuðu tjaldi á Þingvöllum.
Einn þeirra var Jón Hjaltdalín sm. Rvk. (1729).
Niðurstaða varð að yfirhúðin hefði aðeins verið særð eða lítillega skorin, væntanlega til að fjarlægja sýkingu. Þórður hélt því prestinum.
Söguleg skáldsaga um Þórð, ,,Í Gullhreppum", eftir Bjarna Harðarson, kom út 2018.
Kápusíðan sést hér.
Bókin er sjálfstætt framhald af sögu Harðar, ,,Í skugga drottins".

Predikun séra Þórðar Jónssonar í Reykjadal skráð af Brynjólfi Jónssyni á Stóra-Núpi eftir frú Sigríði Briem í Hruna en hún nam af Guðríði móður sinni en hún hafði eftir sinni móður, Ragnheiði, dóttur Finns biskups sem mundi Þórð:
,,Ef allir menn yrðu að einum manni og allir hestar að einum hesti, öll fjöll að einu fjalli, allir steinar að einum steini, og öll vötn að einu vatni, þá skyldi sá stóri maður stíga upp á þann stóra hest, taka í hönd sér þann stóra stein, ríða með hann upp á það stóra fjall og kasta honum í það stóra vatn. Þá yrði mikið bullum hlunk. Eins mun verða þegar þessi veröld hrapar til helvítis”.

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1730

  • Klukkan Friðriki fjórða glymur
← 1730Klukkan Friðriki fjórða glymur1731 →Jón M. er millum meyja glaður