Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1731
1731
1731

Jón M. er millum meyja glaður

Hljóðbrot0:00

Lag Ég hef svo margan morgun vaknað

JJón M. er millum meyja glaðurþótt misst öll hafi völd og féog um hann gengur ennþá slaðurörkumlamaður þó að séhans mjaðmir stirðar, magnlaus hnéþví megi gera' ALLT sitjande.

Glúmur Gylfason · 1731

Heimildir og samhengi

Saga frá Skagfirðingum I, bls. 139, aths. 19 og 148, 8, úrdráttur:
Jón Magnússon (1662-1738), sem brotið hafði af sér prestskaparréttindi með barneign á skólaárum, fékk uppreisn 1687 og varð prestur í Hjarðarholti en missti kallið vegna hórdómsbrots; varð þá sm. í Strandasýslu, síðar Dalasýslu er hann svo missti fyrir hórdómsbrot. Var þá gerður rækur úr fjórðungnum.
Að Sólheimum í Sæmundarhlíð varð hann enn sekur um hórdómsbrot er ógift stúlka ól honum tvíbura 1730 og dæmdur til dauða á héraðsþingi í Seylu, en prófessor Árni, bróðir hans, sem áður hafð bjargað honum úr slíkum vanda, lést 7. janúar.
Hljóp þá Gram prófessor í skarðið og leysti út lífgjafarbréf Jóns, dagsett 30. mars 1731.

Árið 1730, þá 68 ára, nýbakaður faðir, var Jón mjög farinn að heilsu, hægri fóturinn alveg krepptur í mjaðmarliðnum og hafði meira en kvartilsháan trékubb neðan undir fætinum og gekk við tvo stafi. Skrifað gat hann aðeins sitjandi. (1709 Dómabók Skagafjarðar; Ísl. æviskrár).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1731

  • Allt nú þykir ósiður
  • Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kann
← 1730Þórður, er almannarómur rymur,1731 →Allt nú þykir ósiður