Árið 1709

t.d.

3 vísur frá árinu 1709
  1. 1709Lag: Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831 (Augun mín)

    Á er skollið enn eitt stríð

    við erfðafjendur, Svía,
    Íslandsskip í erg og gríð
    ógnað, sökkt og flýja.

    ,,Norðurlandaófriðurinn mikli" stóð frá 1700 um yfirráð á Eystrasalti og vildu Danir endurheimta Skán. Börðust Svíar einir á móti Rússum, Pólverjum, og Prússum auk Dana og Saxa frá 1709. Svíar gáfust upp í árslok 1719…

    Hlusta
    Sænskur sigur við Narva áður en Danir blönduðust í stríðið
  2. 1709Lag: Sá frjáls við lögmál

    Veraldarhyggja og höfðingjasnið

    Hólabiskup markar
    en mölur eyðir, raki' og ryð,
    í Ritningunni snarkar.
    1 erindi til viðbótar

    Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Saga Biskupsstólanna, 617: ,,Biskup (frá 1697) Björn Þorleifsson, d. 1710, var höfðinglega sinnaður, hélt stórar veislur og hafði mikið sveinahald. Vísitasíuferðir Björns voru…

    Hlusta
    Hólar í Hjaltadal 1819
  3. 1709Lag: Kross á negldur meðal manna

    Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja

    - þeirra ein og sama rekkja -
    gáðu lítt að gæta sín
    móðir varð en eigi ekkja
    ógiftri var skylt að drekkja
    en vænt að heita Vídalín.

    Íslenskar æviskrár V, 118, úrdráttur: Þórður Vídalín (Þorkelsson Arngrímssonar lærða) (~1661-1742). Rektor, læknir. Foreldrar: Síra Þorkell Arngrímsson í Görðum á Álptanesi og kona hans, Margrét Þorsteinsdóttir prests í…

    Hlusta
    Stafafell í Lóni austurDrekkingarhylur í Öxará á Þingvöllum