Árið 1693

t.d.

4 vísur frá árinu 1693
  1. 1693Lag: Veik er mundin - Bj.Þ. 915

    Þarf ei lengi í Lífsins bók

    að leita svars:
    Katrínu Drottinn til sín tók
    þann 12. mars.

    Fitjaannáll II, 301: ,,...andaðist Katrín Erlendsdóttir á Stórólfshvoli Ásmundssonar, aldurs 81 árs, ein með helstu konum hér á landi upp á höfðingskap og skörugleika, ásamt útlátum við ríka og fátæka. Hún átti Vigfús…

    Hlusta
    StórólfshvollStórólfshvolskirkja um 1900Austur frá Stórólfshvoli+1
  2. 1693Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Lögskylt að ferja um Ölfusárós

    allra þakka verðast
    en Hekla eldi og ösku jós
    yfir þá sem ferðast.
    2 erindi til viðbótar

    Í Árnesingi Sögufélags Árnesinga, rit III, bls.129, skráir Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður, þátt um Óseyrarnesferjuna og hefur þar margt eftir Guðjóni Sigfússynni, f. 1912, sem starfaði með ferjumanninum, föður…

    Hlusta
    Ölfusá til vinstriÖlfusárós úr vestriVið ferjustaðinn á Óseyrarnesi+2
  3. 1693

    Óknyttaslóðum og slörkurum snjóar

    slæpingjar hvarvetna á randi
    strýktir og markaðir 30 þjófar
    og það bara á Suðurlandi.

    Fitjaannáll II, 296: ,,Þennan vetur brann eldur í Heklufjalli. Bar þann sand vestur um land allt á Vestfirði. Þá gengu yfir í öllum sveitum rán og stuldir, þó helst fyrir austan af fólksfjölda og fiskleysi. Í Árnessýslu…

  4. 1693

    Yfirvöld nú mega mest

    með að velja sóknarprest
    aldnir fá þá brauðin best
    byrjendurnir reka lest.

    Séra Ágúst Sigurðsson: Forn frægðarsetur IV, bls. 70: ,,Á því tímabili, er prestskosningar lágu því nær með öllu niðri í tvær aldir frá 1693, (til 1886) hlaut elsti umsækjandinn að sitja í fyrirrúmi að öllu sjálfráðu,…