Lögskylt að ferja um Ölfusárós
Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830
Lögskylt að ferja um Ölfusárósallra þakka verðasten Hekla eldi og ösku jósyfir þá sem ferðast.
Á ferðalögum fyrri árflestir gerðust þreyttirleiða um klungur latan klárlöður urðu sveittir.
Þá ferja skyldi: af og áeykinn byrðar færaröftum tylla á reiðskap máog ríða hnútum snæra.
Heimildir og samhengi
Í Árnesingi Sögufélags Árnesinga, rit III, bls.129, skráir Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður, þátt um Óseyrarnesferjuna og hefur þar margt eftir Guðjóni Sigfússynni, f. 1912, sem starfaði með ferjumanninum, föður sínum, árin 1925 t.o.m. 1927, en hætt var að ferja 1931 eftir að vegur var kominn frá Hveragerði að Hjalla í Ölfusi. Þar er ferjutollurinn sagður: Maður með hest sem syndir á eftir ferju, 1 fiskur. Gangandi maður 3/4 fiskjar, sem er hið sama og ákveðið var 1855. Þarna er haft eftir Vigfúsi Guðmundssyni úr Sögu Eyrarbakka, að ferjan sé a.m.k. komin á 16. öld. þótt ekki sé lögskipuð fyrir 1693.
Minnst er á Lögferju við Óseyrarnes í Alþingisbók bls. 401-2 . Virðast einhver mótmæli, þó ei skjalleg, hafa verið við ferjupóstunum.
Inn til fjalla II, 45: ,,Þar sem lögferja var, þurftu ferjumennirnir að gegna, hvenær sem kallið kom".
Páll Eggert Ólason: Saga Íslendinga, V, 451, segir ferjuákvæði í Árnesþingi sett 14. sept. 1692. Þar mun átt við reglugerð sem sm. Einar Eyjólfsson gaf út, sem telur þrjár ferjur nauðsynlegar á Ölfusá: á Óseyrarnesi, í Kotferju og í Laugardælum, en nefnir ekki Kaldaðarnes.
(Guðmundur Kristinsson, Saga Selfoss 1, bls. 110).
Talið er að (lög?)ferja hafi verið í Óseyrarnesi frá ómunatíð.
Þegar Eggert Ólafsson ferðaðist 1752 var ferjutollurinn 1 alin eða 2 fiskar fyrir mann og hestburð, ca. 100 kg.
Heimild: Jón Pálsson, Austantórur II, bls. 17.
Í Endurminningum Gríms Gíslasonar í Óseyrarnesi, segir höfundur þeirra, dr. Guðni Jónsson á bls. 27, að lögferja hafi komið á Ferjunes snemma á miðöldum. Nafninu heldur hann að hafi verið breytt til að aðgreina bæinn frá samnefndum bæ við Þjórsá.
Guðni segir umferðina stundum slíka, að minnst fjórir karlmenn auk kvenna í viðlögum hafi annast ferjustörfin á tveimur bátum sem vegna straumþunga í ánni og sjávarflóða hafi verið litlu minni vandi en að vera formaður í Þorlákshöfn.
Einnig segir Guðni að fimm sinnum hafi bærinn verið fluttur undan ágangi Ölfusár, síðast skömmu fyrir 1730 og þá allt upp á Rekstokkstún, sem í fornritum heitir Drepstokkur.
1855 var ferjutollurinn stórlega lækkaður og var eftir það, skv. Guðna Jónssyni, bls. 40: gangandi maður, 1 fiskur, en klyfjar og reiðingur, 3/4 fiskvirðis.
Verðskrá 1875 í aurum talið, en kr. og aurar tóku gildi það ár: ,,maður 25, maður og hestur 35, á í rekstri 6, lamb 4, sauður 8, stórgripur skiplagður 1 króna".
Árið 1904 fékk lögferjumaður á Jöklu í Axarfirði 50 aura á mann fyri flutninginn þegar dagskaup brúarvinnumanna þar við ána var 3 krónur. (Gestur 3, 141).
Í Eimreiðinni 1928 og endurbirt í Sögnum og þjóðháttum, bls. 49, Ísfoldarprsm. 1941, lýsir Oddur Oddsson Óseyrarferjustaðnum á 19. öld áður en brúin kom við Selfoss 1891: ,,Vandi mikill þótti að stjórna þar ferjum. Áin er á ferjustaðnum í meðalflæði 400 metrar og svo djúp að hestar synda þar oftast landa á milli, en ferja þar oft afar torveld og varhugaverð af stórkviku, straumi og vindi. Þó áttu ferjumenn næstum erfiðast með að sporna við ofhleðslu frekra, þekkingarlausra og kappsamra ferðamanna, oft í blindös við ferjuna", (1799, 1800).
1875 deyr bóndinn í Óseyrarnersi og tekur þá við ferjunni tengdasonur hans, Grímur Gíslason (1841-1898), og verður umsvifamikill bóndi og útgerðarmaður, sem meðal annarra jarða kaupir 7/8 Stokkseyrar og gerir hana að verslunarstað með hafnaraðstöðu.
Æviminningar Gríms gaf Guðni Jónsson út 1961 - sjá og hér 1894.
Stórt Heklugos.
Fitjaannáll II, 296: ,,Þennan vetur brann eldur í Heklufjalli. Bar þann sand vestur um land allt á Vestfirði.
Á bls. 72-72 í ,,Ástand Ísl. um 1700" segir að rannsóknir telji þetta gos ásamt gosum í Indónesíu hafi valdið síun á sólarljósi sem olli harðindunum sem uxu þá á Íslandi fram til um 1703, Sbr. hér við 1694, 1699 til 1701.
Þetta var eitt af 4rum stórgosum Heklu frá 1510: 1597, (1693), 1766 og 1947.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Páll Eggert Ólason: Saga Íslendinga V, 225: ,,Hann, sr. Oddur Eyjólfsson, fyrr hermaður í stúdentaliðinu í umsátri Svía um Kh. 1659, afburðanemandi þar og í Skálholti, orðlagður lærdómsmaður í stjarnfræði og sönglist, hraustmenni að burðum, mannkostamaður mikill) hefur samið ritgerð á latínu um Heklugosið 1693 og er það handrit varðveitt í landsbókasafni". Oddur var Skálholtsrektor 1661 til 1667 er hann vígðist til Holts u. Efj. 1667. Hann var sonur Ragnheiðar Oddsdóttur Oddssonar, prests á Reynivöllum, sjá 1642 og 1649.
Blanda 1943 / Gestur bls. 142, Sigurþór Ólafsson (1860-1944), smiður Gaddstöðum, Rang:
,,Þá var enginn vegarspotti til, engar brýr og allt flutt á klökkum. Þurfti oft töluverða karlmennsku til að láta upp á hestana og taka ofan, sérstaklega við stórárnar, Þjórsá og Ölfusá, því að oft var talsverð ös við árnar, og vildu allir verða fyrstir til að komast yfir. ... Ferðalagið byrjaði vanalega á því að sundleggja yfir Þjórsá, vaða við það meira og minna, ferðast svo allan daginn blautur, liggja svo úti eða í útikofa um nóttina og vera yfirleitt síkalt alla ferðina utan við árnar, þar sem menn svitnuðu við að róa og bera af og á. En því kaldara varð mönnum á eftir. Oft voru þá einu úrræðin að hella í sig brennivíni ... varð þá oft vandratað meðalhófið".