Árið 1858

t.d.

4 vísur frá árinu 1858
  1. 1858Lag: 10 litlir negrastrákar

    Á Sauðárkróki kaupmenn þar

    keppast við að selja
    Matthías Jockums mættur var
    að mæla, vega, telja.

    1. janúar 1858 varð Sauðárkrókur löggiltur kaupstaður. Verslun á þurru landi þar 1872. Ludvig R. Kemp, Slysfarir í Skefilsstaðahreppi, bls. 11: ,,Fram að þeim tíma var engin verslun vestanmegin Skagafjarðar og illur…

    Hlusta
    Séra Matthías Jochumsson skáldSkagafjörður+3
  2. 1858Lag: Þrútið var loft og þungur sjór

    Í Stóradalsbónda töggur, tak,

    taldi ei eftir spöl
    sauðina Kristján ríki rak
    til Reykjavíkur um Kjöl.

    Enn magnast fjárkláðinn (1857). Nyrðra stóð fyrir dyrum að sauðir Kristjáns ríka (1793-1866) Jónssonar í Stóradal, Svínavatnshreppi, yrðu valdskornir vegna kláðans. Rak hann þá 270 sauði á góu við fjórða mann á þremur…

    Hlusta
    Hrútfell séð af KiliFornleifaskráning Húnavatnshrepps, Stóridalur, gamli bærinnFjárrekstur við Gaukshöfða, Þjórsárdal+3
  3. 1858Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Kláðamaurinn lengi lifi!

    Lúsinni skal ei fargað
    þótt forseti segi með læknislyfi
    landinu verði bjargað.

    A.m.k. Mýrdælingar höfðu ótrú á að drepa sauðalúsina. Það staðfestir Ritsafn Eyjólfs Guðmundssonar á Hvoli, bls. 58. Árið 1858 tóku Eyfellingar á móti sýslumanni og stiptamtmanni með svipur á lofti við Steinahelli er…

    Hlusta
    mítillSteinahellir+1
  4. 1858

    Póstskipið kom með kláðalyf

    knúið gufuafli
    yfir hverju ráði rif
    Repps þó lokið tafli.

    Þjóðólfur: 1. maí 1858: ,,Póstskipið Victor Emanuel, skrúfugufuskip, 131 lest að stærð, skipherra P. Aanensen, hafnaði sig hér 27. f. mán. Með póstskipinu kom nægð af kláðalyfjum". Þetta er fyrsta gufuknúna póstskipið…