Árið 1796

t.d.

3 vísur frá árinu 1796
  1. 1796Lag: Minnst þú, ó, maður, á minn deyð / 1. Passíus

    Hannes Finnsson af flestum bar

    og frá honum komnir snillingar
    alfaðir við hann í engu spar
    ungar og ríkar konurnar.

    + 4. ágúst Hannes biskup Finnsson f. 1739. Síðasti Skálholtsbiskup að sinni. Dóttursonur Hannesar og 2. k.h., Valgerðar Jónsdóttur, var Steingrímur Thorsteinsson, pereati (1850), skáld og rektor, en 3ji frá þeim…

    Hlusta
    Niels Ryberg Finsen, Nóbelsverðlaunahafi í læknisfræðiHannes Finnsson, biskup Skh.Steingrímur Thorsteinsson, rektor, skáld+3
  2. 1796Lag: Sá frjáls við lögmál

    Þar hvergi sást neitt bóla á brík

    og biskupinn var látinn
    svo Dómkirkjuna varð í Vík
    að vígja undirsátinn.

    Markús Magnússon (1748-1825) stiptsprófastur í Görðum vígir Dómkirkjuna í Reykjavík 6. nóvember - þá nefnd Vík í daglegu tali. Skálholtsbiskup Hannes Finnsson lést 4. ágúst þetta ár. Biskupum hafði verið falið að sjá um…

    Hlusta
    Dómkirkjan í Reykjavík. Núverandi mynd fékk kirkjan 1847
  3. 1796Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Ullarkletti ei má þoka

    allt þar fram hjá beygi
    biskupsstólsins steini og poka
    stendur hann í vegi.

    Hannes biskup Finnsson ofkældist á Þingvöllum í júlí. Hann lést úr lungnabólgu í Skálholti 4. ágúst. Kona hans, frú Valgerður Jónsdóttir, naut aðstoðar mágs síns, Steindórs Finnssonar, sm. Árnesinga, við að útvega frá…

    Hlusta
    Ullarklettur - úr suðri séðurHannes Finnsson, SkálholtsbiskupUllarklettur skagar út í miðri mynd sem tekin er neðar í Hvítá+1