Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1796
1796
1796

Þar hvergi sást neitt bóla á brík

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

ÞÞar hvergi sást neitt bóla á bríkog biskupinn var látinnsvo Dómkirkjuna varð í Víkað vígja undirsátinn.

Glúmur Gylfason · 1796

Heimildir og samhengi

Markús Magnússon (1748-1825) stiptsprófastur í Görðum vígir Dómkirkjuna í Reykjavík 6. nóvember - þá nefnd Vík í daglegu tali. Skálholtsbiskup Hannes Finnsson lést 4. ágúst þetta ár.
Biskupum hafði verið falið að sjá um að taka saman nýja sálmabók og greip nú forseti Landsuppfræðingarfjelagsins, Magnús Stephensen, það hlutverk. Árni Hólabiskkup hafði unnið nokkuð að því verki þar til lést, 1787.
Ögmundarbrík er kennd við Ögmund Pálsson (d. 1541), Skálholtsbiskup, sem keypti hana þangað um 1522 og tvær kerlingar áttu að hafa bjargað úr kirkjubrunanum 1527 ásamt Þorláksskríni., sem hefur verið síðara skrínið, þ.e., það sem Staða-Árni Þorláksson lét gera um dýrlingsbeinin 1292, en 1198 var hann fyrst skrínlagður eftir að hann var löghelgaður dýrlingur á Þingvöllum það ár.
Tilvísun: Hermann Pálsson, Eftir Þjóðveldið, bls. 160.

Úr Brynjólfskirkju í Skálholti, sem þá stóð enn, átti að færa bríkina í nýju Dómkirkjuna í Reykjavík sjóveg frá Eyrarbakka. Á ferðum þaðan til Reykjavíkur var Kaupmannahöfn títt viðkomustaður og réð Eyrarbakkabrimið því hve margir mánuðir fóru í þá reisu og fór bríkin á það flakk. Hún lá lengi í geymslu Eyrarbakkaverslunar og skemmdist. Var svo send til Kaupmannahafnar 1819 óhæf til alls brúks. Reytur af henni fylgdu með öðrum fornmunum sem Danir afhentu vegna alþingishátíðarinnar 1930 og eru til sýnis í Þjóðminjasafni.
Tilvísun: Saga Biskupsstólanna, Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, bls. 663.

HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Að bríkin hafi verið notuð sem kjötfjalhögg í sláturhúsi Eyrarbakkaverslunar kemur fram í bók Jóns Gíslasonar, Úr farvegi aldanna, útg. 1973, bls. 190.
Sama segir Inga Huld Hákonardóttir á bls. 246 í bók sinni, Fjarri hlýju hjónasængur og tilfærir: Ísl. Þjóðmenning V, 136-9, ,,Kristnir trúarhættir”.

Stiptsprófastur, séra Markús Magnússon í Görðum var bróðursonur Jóns Teitssonar Hólabiskups. (1772, 1777, 1780, 1781, 1785, 1856).

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)
Vefurpressreader.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1796

  • Hannes Finnsson af flestum bar
  • Ullarkletti ei má þoka
← 1796Hannes Finnsson af flestum bar1796 →Ullarkletti ei má þoka