Ullarkletti ei má þoka
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Ullarkletti ei má þokaallt þar fram hjá beygibiskupsstólsins steini og pokastendur hann í vegi.
Heimildir og samhengi
Hannes biskup Finnsson ofkældist á Þingvöllum í júlí. Hann lést úr lungnabólgu í Skálholti 4. ágúst.
Kona hans, frú Valgerður Jónsdóttir, naut aðstoðar mágs síns, Steindórs Finnssonar, sm. Árnesinga, við að útvega frá Kaupmannahöfn þann legstein Hannesar og fyrri konu hans, Þórunnar Ólafsdóttur Stefánssonar stam. úr ljósum marmara, sem nú er í kjallara Skálholtskirkju, 172 cm x 115, og þykktin um 15 cm.. Áletrunina orðaði bróðir Þórunnar, Magnús Stephensen.
Steinninn var sagður vega um 19 skippund, sem má vera um of; 1 skpp. 150 kg., en 18 menn var sagt að hefði þurft til að koma honum fyrir í skipi.
Við ágústlok 1802 kom Eyrarbakkaskip Lambertsensverslunar með steininn í kassa. Smíðaður var fleki og steinninn á honum dreginn til lands af róðrarbát.
Í septemberlok var Hvítá orðin á ís. Sérstakur sleði var smíðaður undir steininn og drógu hann tveir hópar karla sem skiptust á við dráttinn. Kassinn danski hefur greinilega verið skilinn eftir á Eyrarbakka af því að þegar að Ullarkletti kom, sem skagar út í ána þar í landi Hamra í Grímsnesi, þá rakst steinninn í og brotnaði það horn af svo sem enn má sjá þótt Ámundi listasmiður og bóndi í Syðra-Langholti hafi límt það á með heitum brennisteini, sem dugði skamma hríð.
Heimild: Grein Skúla Helgasonar, fræðimanns, í Árnesingi 2, riti Sögufélags Árnesinga, bls. 13 -20. Honum sagði Gunnlaugur hrstj. Þorsteinsson (1841-1936) á Kiðjabergi sem um 1869 heyrði gamla menn segja sögu steinsins.
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
,,Beint neðan undan Hömrum er klettadrangur sem skagar fram í HvítáWikiwand (opnast í nýjum flipa). Hann er nefndur Ullarklettur. Lík Jóns Gerrekssonar, Wikiwand (opnast í nýjum flipa)biskups, rak á land í víkinni við Ullarklett árið 1433".
FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)