m
Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið
m
Biskup Geir bauð ætíð inná gekk matarforðaaldrei dó þar eldurinnöllum gaf að borða.
Bonaparte og biskup Geirbetri skrúða tygjastá þessu árum eiga þeirtil embættis að vígjast.
Annar gefur öllum matannað hins er æðien evrópu' ei steypt í glötun gatglöggt um þó að stæði.
Góða hlutann Geir sér kausog góður ennþá nefnduren við hann Napoleon lausen löngum við hann kenndur.
Heimildir og samhengi
Önnur biskupsvígsla á Íslandi (fyrsta 1674).
Hólabiskup, Sigurður Stefánsson (1744-1798) bróðir stiptamtmanns, vígir þar systurson Skúla fógeta: Geir ,,góða” Vídalín, til Skálholtsstiftis.
Faðir Geirs var sr. Jón Vídalín í Laufási f. 1726, Jónssonar sm. Vídalín sem hálfþrítugur varð úti á Hjaltadalsheiði 1726, Pálssonar lm. Vídalín, en ekkja Jóns sýslumanns var Helga Steinsdóttir biskups. (1732).
Vígslugjafinn, Hólabiskup Sigurður Stefánsson, dó næsta ár og kom enginn í hans stað annar en Geir er skipun hlaut í embætti Biskups Íslands 1801, fyrstur eftir þá feðga Ísleif og Gissur.
Geir var réttnefndur ,,góði" vegna örlætis síns sem endaði með gjaldþroti.
Árbók Espólíns: ,,Hann var gildlegr madr at sjá ok feitlaginn, hinn lærdasti madr ok ljúflátasti".
Napoleon Bonaparte komst fyrst til valda þetta ár þótt vígðist (vígði sig) til keisara 1804, 2. des. Nafn hans, Bonaparte, er sótt í Lúkas 10: 38-42, söguna af Maríu er valdi GÓÐA HLUTANN.
Hernaður Napoleons gerði Englendinga að óvinum Dana, sem olli hörmungum á Íslandi og Grænlandi og gjaldþroti danska ríkisins. (1813).
Fororðning kóngs um að Skálholtsbiskup flyttist til Reykjavíkur kom reyndar 1890, en nú til framkvæmda með því að Hólabiskup vígir Geir Vídalín biskup Skálholtsstiftis með aðsetur á Seltjarnarnesi, síðar í elsta húsi Reykjavíkur - annað en Viðeyjarstofa - í Aðalstræti 10, og kirkjan þar frá árinu áður verður dómkirkja.
Hannes Finnsson dó 1796, rétt áður en hann yrði fyrsti biskup þeirrar kirkju. (Ísl. æviskrár).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)