Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1798
1798
1798

Þolinmæði Magnús þraut

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

ÞÞolinmæði Magnús þrauter mætti Þing- til vallakofaræksnið hriplekt hlauthræða burtu allaskalf í vindi þá er þauten þegar dropar fallagögnin verða gegnumblautsvo greint hann fær þau varla. [valla]

Glúmur Gylfason · 1798

Heimildir og samhengi

Wikipedia: ,,AlþingiWikiwand (opnast í nýjum flipa) kom saman á ÞingvöllumWikiwand (opnast í nýjum flipa) í síðasta sinn. Þann 20. júlíWikiwand (opnast í nýjum flipa) fóru þeir fáu sem sótt höfðu þingið heim frá Þingvöllum vegna slæms aðbúnaðar og þar með með lauk þinghaldi þar, sem staðið hafði frá 930Wikiwand (opnast í nýjum flipa)."

Alþingi afnumið með konungsúrskurði 6. júní 1800.

Magnús Stephensen afsegir Þingvelli vegna heilsuspillandi húsnæðis þar og hélt dómstörfum áfram í Reykjavík. Engin viðbrögð - öllum var sama, en síðar kallað Bjarni Thorarensen hann morðingja Alþingis, en Magnús skilaði áliti gegn því að Alþingi yrði endurreist um aldarþriðjungi síðar.
Magnús var á þessum tíma varalögmaður og settur landfógeti, en var í desember 1799 skipaður dómsforseti nýs 3ja manna Yfirréttar, sem þá var í burðarliðnum, sjá 1801.
Hús kom yfir lögréttu á Þingvöllum 1594, en timburkofi sá hinn gisni, sem Magnús afsagði var frá miðri 18. öld. Teikning er til af honum. Hana má finna á vefnum:
Vefurthingvellir.is (opnast í nýjum flipa)

Í bók Bjarna Harðarsonar frá 2010, ,,Króníka úr Biskupstungum" á bls. 12, 34, 35 og 37 eru ljósmyndir af þinghúsi Biskupstungna, Segir Bjarni sig hafa heimild fyrir að það sé reist af viðum þess ,,kofa" sem Magnús Stephensen afsagði sem þinghús á Þingvöllum 1798. Flötur þinghúss Vatnsleysu á myndinni gæti verið u.þ.b. 5x4m, hæð um 4,5m.

Á bls. 24 í Heimildarþáttum l, Hannesar Péturssonar, er þessi lýsing: ,,Þetta hús eða hjallur var ein stofa, réttarsalur, og loft yfir, þiljað sundur í tvennt. Þar uppi bjuggu lögmenn í sínum endanum hvor þá daga sem þingið stóð".

1764, sjá þar, var Lögrétta lögð niður, en þá höfðu Norsku lög í stað Jónsbókar frá 1281, verið innleidd í áföngum með konungstilskipunum frá miðjum 4ða áratugnum.
Jónsbók stæði reyndar undir því nafni að kallast norsk lög. Alþingi var þegar hér er komið sögu einungis dómþing, og helsta eða eina frumkvæði þingmanna var að senda bænarskrár til konungs um að leyfa að hengja þjófa, herða vistarbandið (1783) og banna hjónabönd fátæklinga (1823, 1922). Alþingi á þessum tíma hefði ekki stuðlað að því að kaupstaðirnir 6 frá 1786 hefðu dafnað - þéttbýli skyldi ekki myndast.

Magnús Stephensen fylgdi uppýsingarstefnunni og var hlyntur mildari refsingum en verið höfðu.
Þar var hann - sem víðar - í minnihluta meðal íslenskra dómara og fór gegn almenningsálitinu hér.
Hæstiréttur staðfesti einatt hans dóma og/eða tók undir dómsálit hans þótt ekki þættu öll mild nú. (1799).
(Íslenskar æviskrár o.fl.).

Í Heimildarþáttum I, 25, rekur Hannes Pétursson húnvetnst sauðaþjófnaðarmál sem kom til kasta Magnúsar Stephensen á Þingvöllum 1792. Hjón sem stálu sér og bjargarlausum börnum sínum til matar dæmd í héraði - sm. Ísleifur Einarsson, sjá 1801 - hún til ársvistar í múrnum við Arnarhól, en hann til ævilangrar þrælkunar í Kaupmannahöfn, en Magnús dæmdi henni einn mánuð, og manninum eitt ár við Arnarhól.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1798

  • Í Hjaltadal á bak og burt
  • Ponti nú að baki ber
← 1797m1798 →Í Hjaltadal á bak og burt