Árið 1683

t.d.

2 vísur frá árinu 1683
  1. 1683Lag: Dvel ég í draumalandi

    Jón var sagður sænskra þý

    sætti lagi að flýja
    komst svo heill á húfi frí
    með handritin til Svía.
    Að Bláturn kauða' í komið var
    kennum þessu prangi
    en Leon-ora Ulfeld þar
    í áratugi fangi.

    Jón Eggertsson (~1643-1689) átti í margvíslegum deilum, kærði og sætti kærum, t.d. fyrir galdur á alþingi 1680. Safnaði handritum fyrir Svía og kom í þeirra hendur með því að senda annan í land með þau á Helsingjaeyri…

    Hlusta
    BláturnCorfitz og Leonora  UlfeldBláturn+1
  2. 1683

    Fordæðu síðast fyrir brennt

    en forneskju vestra iðja
    í Selárdalssporin seint mun fennt
    séra Páls og niðja.

    Síðast brennt fyrir galdra. Gils Guðmundsson, Frá ystu nesjum, I, 138: Holtsprestur, Önundarfirði, sr. Sigurður Jónsson (Arasonar í Vatnsfirði (1636) og k.h. Hólmfríðar Sigurðardóttur (1617) Oddssonar biskups), ritar í…